Í dag fram hraðskákmót meðfram Canadian Open sem Vignir Vatnar Stefánsson tekur þátt í. Vignir tók þátt á hraðskákmótinu og gerði sér lítið fyrir og vann alla sína andstæðinga, níu að tölu! Vignir hafði mikla yfirburði og hækkar hraðskákelóstigin sín og fer enn hærra yfir 2600-stiga markið í hraðskák!
Vignir var stigahæstur keppenda en stórmeistararnir voru þrír sem tóku þátt. Hinir tveir náðu sér engan veginn á strik og náðu ekki einu sinni upp á efsta borð til að tefla við Vigni.
Næstu menn fengu sjö vinninga, árangur Vignir samsvarar 2715 hraðskák-elóstigum og hækkar Vignir um 6 hraðskákstig fyrir þenna árangur.

- Auglýsing -
















