Skákmeistarinn og einn sterkasti hraðskákmaður landsins, Gauti Páll Jónsson (2103) situr þessa dagana að tefli í Poznan í Póllandi.

Gauti Páll, sem er afar hugmyndaríkur, notaði áhugaverða leið til að finna mótið.

Eftir þrjár umferðir hefur hefur Gauti hlotið 1 vinning. Hefur farið óvenjulega leið. Tapar með hvítu en gerir jafntefli við svörtu. Gerði gott jafntefli í fyrstu umferð gegn FIDE-meistara.

Alls taka 28 skákmenn þátt í flokki Gauta. Þar á meðal þrír stórmeistarar. Gauti er nr. 21 í stigaröð keppenda.

Segja má að mótið sé „gamli skólinn“. Níu umferðir á níu dögum. Umferðir hefjast kl. 10 á morgnanna. Ekki virðist vera boðið upp á beinar útsendingar.

- Auglýsing -