Síðan Arkady Dvorkovich afsalaði sér völdum sem forseti FIDE í fyrradag vegna viðskiptaþvingana Evrópusambandsins hefur þróunin verið hröð. Í gær, skömmu eftir að Vishy Anand tók við tímabundið forseti, tilkynnti Timur Turlov, forseti Skáksambands Kasakstan og stofnandi Freedom Holding, formlega að hann byði sig fram til forseta FIDE.

Turlov, sem áður átti að vera varaforsetaefni Dvorkovichs, býður sig nú fram forsetaefni með Vishy Anand sem varaforsetaefni.

Turlov leggur áherslu á þrjá meginþætti: innleiðingu gervigreindar í starfsemi FIDE, eflingu skólaskákar og aðstoð við landssambönd við að byggja upp sjálfbæra fjármögnun. Fyrirtæki tengd Turlov hafa fjárfest um 75 milljónir Bandaríkjadala í skákstarfsemi

Rússland styður Kirsan Ilyumzhinov

Rússneska skáksambandið hefur formlega lýst yfir stuðningi við Kirsan Ilyumzhinov, fyrrverandi forseta FIDE 1995–2018. Andrey Filatov, forseti sambandsins, staðfesti þetta við TASS á föstudaginn.

Stuðningurinn kom í kjölfar þess að Dvorkovich afsalaði sér völdum. Rússneska sambandið hafði áður stutt Dvorkovich, en styður nú Ilyumzhinov.

Framboðin eins og þau standa nú

Framboðsfresturinn rennur út á morgun, sunnudaginn 26. júlí kl. 16:00. Hvert framboð þarf stuðning a.m.k. fimm landssambanda (að minnsta kosti eitt frá hverri heimsálfu, en ekki fleiri en átta samtals).

Sem stendur eru eftirfarandi framboð þekkt:

  • Timur Turlov (Kasakstan) með Viswanathan Anand (Indland) sem varaforsetaefni.
  • Wadim Rosenstein (Þýskaland) með Gordon Tang (Kína).
  • Jan Henric Buettner (Þýskaland) með Malcolm Pein (England).
  • Kirsan Ilyumzhinov (Rússland), fyrrverandi forseti FIDE 1995–2018.

Dvorkovich sjálfur er ekki lengur í framboði vegna viðskiptaþvingananna, þó hann sé formlega enn forseti og hyggist skjóta ákvörðun ESB til dómstóla. 

Staða Anand

Anand, sem tók við tímabundið í gær, hefur lýst því yfir að áhersla hans sé á samfellu og því að þjóna alþjóðlega skákheiminum. Hann þakkar Dvorkovich fyrir hans forystu og segir að FIDE haldi sínu striki. Það er athyglisvert að Anand hafði áður sagt að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram aftur sem varaforsetaefni Dvorkovich, en eftir brottför Rússans hefur hann snúið aftur sem varaforetaefni.

Kosningarnar fara fram á þingi FIDE í Samarkand í Úsbekistan 26.–27. september 2026, samhliða Ólympíuskákmótinu.

Skák.is mun sem fyrr hafa puttann á púlsinum um helgina.

- Auglýsing -