Sjö íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice. Taflmennska í öllum flokkum er hafin.

Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.

Önnur umferð fór fram í a-flokki í gær. Jósef gerði jafntefli við austurríska CM-meistarann Nomin Radnaev (2197) en Lenka og Adam töpuðu.

Adam hefur 1 vinning en Lenka og Jósef hafa hálfan vinning.

A-flokkur á Chess-Results

Í b- og c- flokkum fór fyrsta umferð fram í gær. Í dag eru tefldar tvær umferðir.

Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theódór Eiríksson (1845). Þeir töpuðu báðir í fyrstu umferð.

B-flokkur á Chess-Results

Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539). Hann tapaði í fyrstu umferð

C-flokkur á Results

Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757). Þar eru búnar tvær umferðir. Þeir kumpánar hafa 1 vinning.

U30+ á Chess-Results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -