Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2540) og skákmeistarinn Óskar Víkingur Davíðsson (2035) gerðu báðir jafntefli í fjórðu umferð alþjóðlega mótsins í Kavala í Grikklandi. Vignir gegn stigaháum úkraískum FIDE-mesitara. Óskar Víkingur heldur áfram að ná góðum úrslitum gegn stigahærri andstæðingum. Búinn að tefla upp fyrir sig allt mótið.

Frídagur er í dag. Gamli skólinn. Fimmta umferð fer fram á morgun og verður Vignir í beinni. Hann mætir stigalágum stórmeistara, hinum armenska Levon Babujian (2337). Stigalærri en FIDE-meistarinn frá í gær.

Alls taka 148 keppendur frá 32 löndum í a-flokki þar sem þeir tefla. Vignir er nr. 3 í stigaröð keppenda en Óskar er nr. 128.

Guðmundur Peng Sveinsson (1700) teflir í b-flokki (u2100). Hann vann í gær og hefur 2 vinning eftir fjórar umferðir.

 

- Auglýsing -