Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki. Í dag fór fram skákmót. Hvorki meira né minna en um 70 krakkar tóku þátt!
Mótsstjórn annaðist Svavar Viktorsson og gekk mótshaldið afar vel.
Keppt var í einum flokki en verðlaunað í tveimur. Svo fór að bræðurnir Örvar Hólm og og Nökkvi Hólm unnu sitthvoran flokkinn.
11-14 ára
1. Örvar Hólm Brynjarsson 9/9
2. Nökkvi Már Valsson 8/9
3. Óðinn Darri Hjálmarsson 7/9.
15-18 ára.
Verðlaunahafar í eldri flokki.1. Nökkvi Hólm Brynjarsson 7/9.
2. Eyþór Páll Ólafsson 6/9.
3. Kristján Óli Gustavsson 6/9.
- Auglýsing -
















