Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) situr að tafli í Barcelona á Spáni dagana 21.-30. ágúst.
Hann vann aftur í gær og hefur hlotið 3½ vinning. Hilmir er í 4.-24. sæti.

Hilmir mætir mongólíska alþjóðlega meistaranum Erdene Baasansuren (2406) í fimmtu umferð fram fer í dag. Ská Hilmis verður í beinni og hefst kl. 14:30.
Hilmir í beinni útsendingu frá fimmtu umferð
Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.
- Auglýsing -


















