Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) sat að tafli í Barcelona á Spáni dagana 21.-30. ágúst.

Í tíundu og síðustu umferð sem fram fór í gær vann Hilmir Pólverjann Adam Haladaj (2085) á laglegan hátt.

Hilmir lék 43…Hxe2! og vann skömmu síðar.

Hilmir hlaut 7 vinninga í umferðunum 10. Hann endaði í 17.-36. sæti og hækkaði um 15 skákstig. Hann fær þá hækkun þó ekki birta fyrr en á október-stigalistanum.

Alls tóku 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir var nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.

- Auglýsing -