Markús Orri (Mynd: Thor Kvakkestad)

Eitthvað er dauft yfir haustmóti SA þetta árið. Tólf keppendur mættu á upphafsumferðirnar í fyrradag en í 3.-4. umferð í gærkvöldi komu aðeins sjö, þ.e. keppendum fækkaði um fimm.

Mótið vissulega auglýst með sveigjanlegu fyrirkomulagi, en þessi slaka þátttaka veldur samt vonbrigðum, enda nokkrir sem voru líklegir til að koma í gærkvöldi, sáust ekki.

Enn er ekki útséð um það hverjir komast í úrslitin og jafnvel ekki útilokað að einhver sem hressist í fyrramálið og ákveður að tefla tvær skákir í 5-6. umferð gæti komist áfram.

Enn er minnt á fyrirkomulagið; undanrásir með sex atskákum og þeir sex keppendur sem flesta vinninga hljóta komast áfram í úrslitakeppnina; þar verður tefld einföld umferð, kappskák um meistaratitil félagsins. Í undanrásunum er í boði að tefla eins margar og mann lystir, en vitaskuld fæst enginn vinningur fyrir óteflda skák.

Nú er bara að vona að Eyjólfur hressist og fleiri láti sjá sig í dag; þá byrjum við kl. 13.
Staða þeirra 12 sem hafa teflt a.m.k. eina skák er sem hér segir:

Name Rtg Pts
Oskarsson Markus Orri 2027
IM Karason Askell O 2170
Hoda Gent 1587 3
Eiriksson Sigurdur 1925 2
Karlsdottir Harpa Hrafney 1506 2
Kramarenko Viacheslav 1454 2
Valsson Nokkvi Mar 1610 2
Bernhardsson Kristian Mar 1478 1
Lanckman Galaad 0 1
Wasowicz Maria Grazyna 0 0
Sigurdsson Hjortur Gunnar 0 0
Wielgus Dominik W 0 0

 

 

- Auglýsing -