Bragi hafði betur gegn Óliver í afar spennandi einvígi

Tvær viðureignir fóru fram í 16-manna úrslitum Íslandsmótsins í netskák á sunnudaginn. Akureyringurinn Jón Kristinn Þorgeirsson vann sannfærandi sigur á reynsluboltanum Róbert Lagermann og stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson vann nauman sigur á liðsfélaga sínum, Oliver Aron Jóhannessyni.

Viðureignir voru í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans sem og á Youtube-síðu Rafíþróttasambands Íslands.

Hægt er að horfa á útsendinguna hér en lýsendur voru þeir Björn Þorfinnsson og Birkir Ísak Jóhannsson. 

Fyrra einvígi dagsins var viðureign Jón Kristins og Róberts. Þeir félagarnir mættust einnig í 16-manna úrslitum í fyrra og þar hafði Jón Kristinn betur. Segja má að einvígið í ár hafi fylgt sama handriti, Róbert fékk oft upp fínar stöður eftir byrjunina en notaði síðan of mikinn tíma í miðtaflinu og í tímahrakinu hafði Jón Kristinn mikla yfirburði enda afar snöggur á klukkunni og útsjónarsamur og brögðóttur með afbrigðum. Niðurstaðan varð 3,5 – 0,5 Jóni Kristni í vil.

Jón Kristinn vann sannfærand sigur gegn Róberti

Seinna einvígið milli Braga og Olivers var afar spennandi. Oliver, sem var að þreyta frumraun sína í þessu móti, vann fyrstu skákina eftir mikinn barning og varðist síðan af mikilli hörku og hékk á jafntefli í annarri skákinni.

Bragi mátti alls ekki tapa þriðju skákinni en fékk mun verri stöðu eftir byrjunina og útlitið svart. Hann náði hins vegar að trikka mann af Oliver en var þó enn í nauðvörn og með lítinn tíma á klukkunni. Stórmeistarinn náði þó að verjast með naumindum, vann mikilvægan sigur og jafnaði metin fyrir hlé.

Fjórða skákin endaði með jafntefli eftir hörkubaráttu en í þeirri fimmtu náði Bragi að kreista fram sigur eftir enn einn barninginn og ná 3-2 forystu í einvíginu.

Oliver tefldi síðustu skákina af krafti, fékk yfirburðatafl og var þar að auki með mun betri tíma. Bragi fór að lokum í örvæntingafulla sókn sem Oliver höndlaði ekki nægilega vel og missti öll tökin á stöðunni. Bragi fékk í kjölfarið upp vænlegt endatafl sem hann gerði ekki minnstu tilraun til að reyna að vinna heldur sigldi öruggu jafntefli í höfn og þar með sigur í einvíginu með minnsta mun, 3,5 – 2,5.

Bragi og Jón Kristinn eru því komnir áfram í 8-manna úrslit mótsins. Andstæðingur Braga verður Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr Heimisson en Jón Kristinn mun mæta sigurvegaranum í einvígi stórmeistarans Vignis Vatnars Stefánssonar og alþjóðlega meistarans Dags Ragnarssonar.

16-manna úrslit

Viðureignirnar í 16-manna úrslitum, raðaðar í dagsetningarröð, eru sem hér segir (sigurvegarar eru feitletraðir):

  • 6. september: WGM Lenka Ptácníková – GM Jóhann Hjartarson (frestuð viðureign)
  • 6. september: IM Hilmir Freyr Heimisson – FM Símon Þórhallsson
  • 13. september: FM Jón Kristinn Þorgeirsson – FM Róbert Lagerman
  • 13. september: GM Bragi Þorfinnsson – FM Oliver Aron Jóhannesson
  • 27. september: IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – FM Bárður Örn Birkisson
  • 27. september: IM Björn Þorfinnsson – GM Helgi Áss Grétarsson
  • 4. október: GM Vignir Vatnar Stefánsson – IM Dagur Ragnarsson
  • 4. október: FM Sigurbjörn Björnsson – FM Ingvar Þór Jóhannesson

Átta manna úrslit

Sigurvegarar tveggja viðureigna í sama flokki mætast í átta manna úrslitum:

  • Lenka/Jóhann – Sigurbjörn/Ingvar
  • Aleksandr/Bárður – Björn/Helgi Áss
  • Jón Kristinn – Vignir/Dagur
  • Bragi – Hilmir

Undanúrslit og úrslit

  • Lenka/Jóhann – Sigurbjörn/Ingvar vs. Aleksandr/Bárður – Björn/Helgi Áss
  • Jón Kristinn – Vignir/Dagur vs.  Bragi – Hilmir
  • 15. nóvember: Úrslit!

 

- Auglýsing -