Íslensku liðin náðu frábærum úrslitum í áttundu umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand sem fram fór í dag. Í opna flokknum gerði liðið jafntefli við stórmeistarasveit Ítalíu en í kvennaflokki vannst ótrúlegur 3½–½ sigur gegn Mexíkó þrátt fyrir að þær væru stigahærri á öllum borðum! Þjóðverjar hrærðu upp í toppbaráttunni með því að vinna heimamenn, Úzbeka. Skemmtilegar lokaumferðir framundan!
Opinn flokkur: Ítalía – Ísland
Allir fjórir Ítalirnir eru stórmeistarar og voru Ítalirnir stigahærri á öllum borðum. Hannes kom inn fyrir Jóhann sem hvíldi í dag.
| Borð | Ítalía | stig | Ísland | stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | GM Lorenzo Lodici | 2573 | GM Vignir Vatnar Stefánsson | 2531 |
| 2 | GM Luca Moroni | 2556 | IM Hilmir Freyr Heimisson | 2342 |
| 3 | GM Francesco Sonis | 2539 | GM Hannes Hlífar Stefánsson | 2425 |
| 4 | GM Sabino Brunello | 2536 | GM Guðmundur Kjartansson | 2402 |
Viðureignin fór aldeilis ekki vel af stað því rétt var liðinn klukkutími af umferðinni þegar Hannes hafði leikið illa af sér og varð að gefast upp!
Vignir hafði 5 af 7 fyrir skákina og tefldi djarft með svörtu gegn Lodici í Philidor vörn. Áhættan gekk vel upp og í miðtaflinu fékk Vignir betra tafl og komst í endatafl peði yfir. Mislitir biskupar voru þó á borðinu sem komu í veg fyrir frekari landvinninga Vignis sem varð að sættast á jafntefli.
Guðmundur hafði fínt tafl framan af en missti tökin í miðtaflinu og peðameirihluti svarts á drottningarvæng og vald á c-línunni setti stöðu Guðmundar algjörlega í kaðlana! Þegar neyðin var mest tók Guðmundur mikinn séns í stöðunni, var hróki undir en fékk hættulegt mótspil. Mótspilið skilaði sér eftir afleik í 44. leik, Gummi fann taktíkina og fékk unnið endatafl þar sem hann gerði engin mistök.
Næst á dagskrá er lið Japan, gamla góða sýnd veiði en ekki gefin en tækifæri á að komast í góð færi fyrir lokaumferðirnar. Ísland hefur 10 stig. En staða efstu þjóða er eftirfarandi:

Úzbekar áfram efstir en Þjóðverjar hristu upp í toppnum með því að leggja þá að velli. Þjóðverjar eru jafnir að vinningum en nokkuð á eftir í oddastigum. Þjóðverjar hafa þó þegar mætt Kínverjum, Bandaríkjamönnum og Úzbekum og ef þeir halda vel á spilunum í sínum viðureignum gætu þeir treyst á að Bandaríkjamenn nái t.d. stigi af Úzbekum. Fyrst þurfa þeir þó að lifa af viðureignina við Indverja!
Keymer hefur verið grjótharður á efsta borði og Frederik Svane hefur náð í lykilpunkta í stórum viðureignum og verið einn mikilvægasti liðsmaður þeirra. Leiðin að gullinu ætti þó enn að vera í höndu Úzbeka ef þeir ná að leggja Bandaríkjamenn að velli í næstu umferð, alvöru viðureign!
Kvennaflokkur: Mexíkó – Ísland
Mexíkó voru stigahærri á öllum borðum gegn íslenska liðinu þar sem Iðunn kom inn fyrir Hrund.
| Borð | Mexíkó | stig | Ísland | stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | WIM Zenia Corrales Jiménez | 2125 | WGM Lenka Ptácníková | 2082 |
| 2 | WIM Tania Miranda Rodríguez | 2041 | WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir | 1995 |
| 3 | WCM Mia Fernanda Guzmán García | 2007 | WFM Guðrún Fanney Briem | 1865 |
| 4 | WCM Scarlett Daniela Olea Valle | 1975 | WCM Iðunn Helgadóttir | 1869 |
Iðunn tefldi vandaða skák á 4. borði og gjörsamlega pakkaði andstæðingi sínum saman. Fínn byrjanaundirbúningur þar sem enn reyndist vopnabúr vídeóa Vignis vel vandanum vaxið!
Iðunn fékk fína stöðu og eiginlega það góða að það var synd að gera eitthvað í stöðunni, pósamenn eins og Þorsteinn Þorsteinsson hefðu notið sín í botn í stöðunni og hert skrúfuna enn frekar áður en hefði verið látið til skarar skríða. Var það eini ljóðurinn á algjörri pökkun að sú mexíkóska átti einn séns til að fá unnið tafl en það er nánast ósanngjarnt að minnast á það þegar hún hafði haft tapað alla skákina!
43.Hf8! og mát í næsta leik!
Stórsigurinn gefur liðinu byr undir báða vængi í baráttunni um gull í C-kategóríu en veitt eru flokkaverðlaun eftir styrkleika sem er raðað í miðað við upphafsstyrk sveita. Ísland er nú í öðru sæti á oddastigum þegar þrjár umferðir eru eftir!
Næst á dagskrá er erfið viðureign gegn Úzbekistan 2 sem eru með mjög sterkt lið en íslenska liðið er yfirfullt af sjálfstrausti eftir góðan sigur í dag!
Á toppnum sitja Kínverjar eftir sigur gegn Georgíu. Kazakar gerðu jafntefli við Indverja. Spennan þó nokkur í kvennaflokki eins og í þeim opna!
Ólympíu-tenglar!
- Tengill sem á að virka í hverri umferð: Beinn tengill á skákir Íslendinga á 8by8verse
- Skákir á lichess (þarf að velja rétt umferð og flokk) : Lichess beint
- Opinber heimasíða mótsins: chessolympiad2026.fide.com
- Pörun og staða, opinn flokkur: chess-results.com – Open
- Pörun og staða, kvennaflokkur: chess-results.com – Women
- Bein útsending FIDE á YouTube: youtube.com/@FIDE_chess/streams
- Chess.com-síða mótsins: 2026 FIDE Chess Olympiad
- Íslenskar fréttir og viðtöl við farana: skak.is og flokkurinn Ólympíufarinn
- INSTAGRAM síða Skáksambandsins (Story o.f.l.) : Instagram
- Yfirlit á Wikipedia: 46th Chess Olympiad





















