Meistaramóti Skákskóla Íslands – Ungmennameistaramóti Íslands U22 lýkur í dag í Skákskólanum, Faxafeni 12. Lokaumferðin hefst kl. 11:00.

Teflt er um tvo titla; Meistari Skákskóla Íslands og Ungmennameistari Íslands U22.

Að fimm umferðum loknum eru Benedikt Þórisson og Markús Orri Óskarsson jafnir í efsta sæti og tefla saman í lokaumferðinni. Einungis Pétur Úlfar Ernisson getur náð þeim að vinningum með hagstæðum úrslitum í lokaumferðinni.

Verði keppendur jafnir að vinningum að umferð lokinni verður teflt, með styttri tímamörkum, um titlana.

Pörun lokaumferðarinnar

Hægt er að fylgjast með skákum mótsins í beinni útsendingu.

Myndir: Tómas Tandri Jóhannsson

Dagskrá:
1.-3. umferð kl. 17:00-19:15 föstudaginn 2. október (atskákir, 15+5)
4. umferð kl. 11:00 laugardaginn 3. október (kappskák, 90+30)
5. umferð kl. 17:00 laugardaginn 3. október (kappskák, 90+30)
6. umferð kl. 11:00 sunnudaginn 4. október (kappskák, 90+30)

- Auglýsing -