Ný íslensk skákkennslusíða, Skákuglan – skakuglan.is, hefur nú verið opnuð. Síðan hefur verið í vinnslu undanfarin misseri og er þar að finna kennslumyndbönd og ýmiss konar efni fyrir skákáhugafólk sem vill bæta sig í skákinni.
Framboð á skákkennsluefni á íslensku hefur verið fremur takmarkað og er því ánægjulegt að sjá nýjungar á þeim vettvangi. Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson sér um síðuna.
Á Skákuglunni er boðið upp á tvær áskriftarleiðir:
- Kennslumyndbönd: 1.990 kr. á mánuði.
- Kennslumyndbönd og PGN-skrár: 2.790 kr. á mánuði.
PGN-skrárnar gera áskrifendum kleift að fara sjálfir yfir skákir og kennsluefni í skákforritum.
Talsvert af efni síðunnar er jafnframt aðgengilegt öllum án endurgjalds og því um að gera fyrir áhugasama að kíkja við og kynna sér það sem Skákuglan hefur upp á að bjóða.
Hvernig gerist maður áskrifandi?
Áhugasamir geta haft samband við Skákugluna með nafni, netfangi og upplýsingum um hvaða áskriftarleið þeir kjósa. Greiðsluupplýsingar eru þá sendar og aðgangur opnaður samdægurs.
Hér að neðan má sjá stutt kynningarmyndband um síðuna.
https://www.youtube.com/watch?v=IHqlYl4vUoA
Heimsæktu Skákugluna – skakuglan.is



















