Eftir sigur minn í fimmtu umferð gegn 16 ára rúmenska stórmeistaranum Felix-Antonio Ilinca (2507) í A-flokki skákhátíðarinnar í Benidorm var ég kominn í kjörstöðu til að vinna mótið þar eð ég hafði fullt hús vinninga og hafði vinningsforskot á næstu keppendur. Strax eftir skákina gegn Rúmenanum reiknaði ég með að tefla við norska stórmeistarann Kristian Stuvik Holm (2500) í sjöttu umferð. Síðar þetta kvöld, 28. október, kom í ljós að sá norski tók yfirsetu í sjöttu umferð og hafði þar af leiðandi 4½ vinning af 6 mögulegum.
Þetta sama kvöld, þegar ég renndi yfir keppendalistann á atskákmóti, minningarmóti Emilio Pellicer, sem skyldi hefjast morguninn eftir og vera lokið um kl. 14:00, þá taldi ég mig eiga ágætis möguleika á að vinna þetta atskákmót. Ég skráði mig því til leiks.
Jafnframt afréð ég að hefja undirbúning fyrir næstu skák mína í aðalmótinu en andstæðingur minn þar er gamalreyndur skoskur alþjóðlegur meistari, Stephen Mannion (2191). Áskorunin sem ég stóð frammi fyrir fimmtudaginn 29. október var álagið sem fylgdi því að tefla á atskákmóti um morguninn og svo tefla kappskák við Mannion sem hæfist kl. 16:30.
En eitt í einu, fyrst var að taka þátt í atskákmótinu sem hófst skömmu fyrir kl. 10:00, fimmtudagsmorguninn 29. október!
Atskákmót fimmtudaginn 29. október 2026
Ég hóf fyrstu umferðina á atskákmótinu (tímamörkin 10 mín + 5 sek) með fremur ósannfærandi sigri á 15 ára spænskum skákmanni með 1785 atskákstig. Í annarri umferð mætti ég aftur 15 ára spænskum skákmanni, Jaime Lopez Martinez (1946). Framan af tefldi sá spænski vel en hægt og sígandi fannst mér staða mín verða betri og betri. Í lokin missti ég tökin á framvindu mála en lagði gildrur fyrir andstæðinginn í því augnamiði að ná til kóngsins hans. Með réttu hefði það átt að duga til sigurs:
1 stöðumynd, Atskákmót Benidorm skákhátíðarinnar, 29. október 2026, Jaime Lopez Martinez (1965) gegn Helga Áss Grétarssyni (2403), staðan eftir 1. Db8+
Báðir keppendur voru naumir á tíma, augljóslega var hugmyndin mín hér að leika 1…Kh7 og tefla upp á mátið á g1. Hins vegar, með nokkrar sekúndur eftir á klukkunni, fóru einhverjar leiðslur úr sambandi hjá mér þar eð ég hélt að hvítur myndi svara 1…Kh7 með 2. Rf6+ Kg7 3. Dg8+ Kxf6 4. Dh8+ og hvítur vinnur. Augljóst má þó vera að eftir 1…Kh7 2. Rf6+ vinnur svartur því með að hirða riddarann á f6, 2…Dxf6!
Eftir að skákinni lauk með jafntefli í kjölfar 1…Kg7 2. De5+, spurði ungur Kasaki mig, Zhanbolat Amankos (2081), hvers vegna ég hefði ekki leikið 1…Kh7? Í framhaldinu rökræddum við stöðuna eftir 1…Kh7 ásamt goðsögninni, enska stórmeistaranum og Íslandsvininum, hinum 67 ára James Plaskett (2388). Sá enski, sem er kunnur orðhákur og skemmtilega óvenjuleg týpa, varði hvítu stöðuna framan af, taldi að 1…Kh7 yrði svarað með 2. h4 og hvítur næði að halda jöfnu.
Niðurstaðan var hins vegar sú að Kasakinn fann vinningsleiðina: 1…Kh7 2. h4 h5!, t.d. er hvíta taflið gjörtapað eftir 3. Re3 Dg1+ 4. Kh3 Dxf2.
Plaskett hefur búið á Alicante-svæðinu í nokkra áratugi en hann vann 250.000 pund árið 2006 í þættinum Viltu vinna milljón á Bretlandseyum, fjárhæð sem samsvarar 75 milljónum íslenskra króna í dag. Hann sagði mér síðar að hann hefði ásamt eiginkonu sinni keypt 6 herbergja hús fyrir vinninginn. Á sínum tíma tefldi hann á alþjóðlegum mótum á Íslandi, t.d. í Vestmannaeyjum árið 1985 og á lokaða Reykjavíkurskákmótinu árið 1992. Hann og Helgi Ólafsson voru vinir á þessum tíma og spurði hann mig um nafna minn og íslensku goðsögnina sem varð nýlega sjötug.
Margar sögur hef ég heyrt af Plaskett en ekki er rými til að deila þeim hér. Eigi að síður, hann mun koma við sögu síðar í greininni!
Í þriðju umferð atskákmótsins vann ég eldri Spánverja nokkuð örugglega og svo áðurnefndan Kasaka, Zhanbolat Amankos (2081), í fjórðu umferð. Í þessari sömu umferð missti stigahæsti keppandi mótsins, spænski stórmeistarinn, Jose Carlos Ibarra Jerez (2537), niður hálfan vinning gegn 14 ára FIDE-meistaranum Miroslav Baturin-Vinogradov (2208), sem teflir undir fána FIDE, en er frá Rússlandi.

Gamla brýnið Plaskett var þá sá eini sem hafði fullt hús vinninga en í fimmtu umferð laut hann í dúk fyrir spænska stórmeistaranum. Satt best að segja vissi ég lítið um þennan spænska stórmeistara en eftir á að hyggja virðist sem hann sérhæfi sig í að tefla skák með styttri tímamörkum og sé með afar rútíneraðan skákstíl.
Hverju sem því líður, þá mætti ég norska stórmeistaranum Kristian Stuvik Holm (2448) í fimmtu umferð mótsins:
2 stöðumynd, Atskákmót Benidorm skákhátíðarinnar, 29. október 2026, Helgi Áss Grétarsson (2403) gegn Kristian Stuvik Holm (2448), staðan eftir 17…Hd8-xd5
Eins og í sumum öðrum skákum á þessu atskákmóti reyndi ég að tefla eins hratt og ég mögulega gat. Það var tiltölulega einfalt í þessu tilviki þar eð Norðmaðurinn tefldi teóríu sem ég þekkti. Þótt ég þekkti ekki nákvæmlega þessa stöðu þá vissi ég að svartur hafði teflt ónákvæmt leikina á undan. Hér eyddi ég því tíma í að reikna út hvernig best væri að standa að málum og fann gott framhald: 18. f4! Rg4 19. Rf5! Hxf5 20. Dxh5 Dh4 21. h3
3 stöðumynd, Atskákmót Benidorm skákhátíðarinnar, 29. október 2026, Helgi Áss Grétarsson (2403) gegn Kristian Stuvik Holm (2448), staðan eftir 21. h3
Hvítur hefur hér unnið, sem dæmi er 21…Df2+ 22. Kh1 Rxe3 best svarað með 23. Dg5! og svartur er varnarlaus, t.d. eftir 23…Dxb2 24. De7!. Mig minnir að í stað 23. Dg5 hafi ég haft hug á að leika 23. Dd7 þar eð þá tapar 23…Hf8 vegna 24. Dd4. Leiki svartur 23…Kf8 í stað 23…Hf8 þá er besti leikur hvíts 24. Bd4! þar eð svartur staðan er gjörtöpuð eftir 24…Dxf4 25. Dxe8+! Kxe8 26. Hxe3+, t.d. verður svartur mát með snotrum hætti eftir 26…Kf8 27. Bc5+! bxc5 28. Hd8#. Norðmaðurinn, sem var við það að falla á tíma, lék hér 21…Bc8 og gafst upp skömmu síðar: 22. Dc2 Rxe3 23. Dxc6.
Að fimm umferðum loknum voru fjórir skákmenn jafnir og efstir með 4½ vinning. Spænski stórmeistarinn Ibarra tefldi á fyrsta borði gegn 16 ára rúmenska stórmeistaranum Ilinca og ég hafði hvítt gegn spænskum FIDE-meistara sem var aðeins stigahærri en ég á atskákstigum. Snemma tafls, eftir að sá spænski hafði leikið ónákvæmum leik, þá bauð hann mér jafntefli.
Bara til að vera viss spurði ég hann hvað hann hefði verið að segja. Endurtók hann þá jafnteflisboðið. Ég lék mínum leik og sagði nei takk!
Ég er kannski gamall stórmeistari en mér fannst ekki viðeigandi að FIDE-meistari byði mér jafntefli við þessar aðstæður með svörtu, ekki síst í ljósi þess að einu vitibornu verðlaun mótsins voru þau sem veitt voru fyrir fyrsta sætið.

Svo fór að ég blés til sóknar gegn kóngsstöðu andstæðingsins og hafði góða stjórn á stöðunni:
4 stöðumynd, Atskákmót Benidorm skákhátíðarinnar, 29. október 2026, Helgi Áss Grétarsson (2403) gegn Diego Pino Macias (2413), svartur á leik
Þessi staða er unnin á hvítt en framhaldið varð eftirfarandi: 1…Hg8 2. d5! e5 3. Bxe5 Hxg3+ 4. Dxg3 Dxg3 5. hxg3 Rg6 og í þessari stöðu varðist sá spænski varðist af ótrúlegri seiglu en hægt og sígandi vélaði ég af honum léttu mennina og í lokin hafði ég enn biskupaparið en hann þrjú peð og ég eitt peð, a-peðið. Þá loksins gafst svartur upp.
Margir áhorfendur urðu vitni að lokum skákarinnar og um það leyti sem ég var að stíga upp úr stólnum mínum, kemur James Plaskett aðvífandi, slær þéttingsfast á bak mitt og segir á ensku:
„You are a dangerous, son of a bitch!“
Á íslensku: „Þú ert hættulegur, tíkarsonur!“
Mér fannst þetta fyndið atvik en fljótlega fékk Plaskett einhverja bakþanka og sagðist vonandi ekki hafa móðgað mig. Ég tjáði honum að þar sem þetta hefði komið frá honum, þá liti ég svo á að um hrós væri að ræða!
Jæja, að sex umferðum loknum á atskákmótinu hafði ég 5½ vinning af 6 mögulegum og í lokaumferðinni mætti ég, með svörtu, stórmeistaranum áðurnefnda, Jose Carlos Ibarra Jerez. Fyrir lokaumferðina var netið að stríða mótshöldurum og ég áttaði mig engan veginn á hver staða keppenda væri, annað en að spænski stórmeistarinn væri líkt og ég með hálfan vinning niður og við myndum tefla saman á fyrsta borði.
Ég fór því að grennslast fyrir um málið í samtali við einn skákstjóra mótsins. Kom þá upp úr dúrnum að fyrsta kríterían, sem ákvarðaði röð keppenda sem væru jafnir að vinningum, væri meðaltal af stigaframmistöðum andstæðinga þeirra, krítería sem ég hafði aldrei heyrt af áður!
Við skoðun á mótstöflunni fyrir lokaumferðina kom í ljós að sá spænski hefði mun hærri stig, mæld á þennan mælikvarða, en ég. Samkvæmt því myndi jafntefli duga honum til að vera í hærra sæti en ég. Í því samhengi varð til þess að líta að á öðru borði áttust við kúbverski Bandaríkjamaðurinn Carlos Enrique Mena Crespo (2386) og James H. Plaskett. Þessir tveir keppendur höfðu 5 vinninga og gátu fræðilega orðið fyrir ofan mig eða þann spænska, ef jafntefli yrði á milli okkar.
Fyrir fram vissi ég því að jafntefli gerðu lítið sem ekkert fyrir mig, eingöngu sigur gegn þeim spænska hefði einhverja merkingu, meðal annars vegna þess að verðlaunum var eingöngu skipt eftir því í hvaða sæti maður nákvæmlega lenti.

Í skákinni gegn spænska stórmeistaranum lék ég illilega af mér í byrjun tafls og var fljótlega kominn með tapað tafl. Úrvinnsla andstæðingsins var hins vegar ekki sú besta og ég barðist um hæl og hnakka, skiptamuni undir í endatafli. Þrátt fyrir góða baráttu varð ég að lokum að játa mig sigraðan.

Niðurstaðan varð sú að spænski stórmeistarinn Ibarra varð efstur á mótinu með 6½ vinning af 7 mögulegum, kúbverski Bandaríkjamaðurinn, Crespo, sem vann Plaskett í lokaumferðinni, lenti í öðru sæti með 6 vinninga og ég í því þriðja með 5½ vinning, eftir stigaútreikning.
Skákin gegn Mannion
Það verður að viðurkennast að ég mætti þreyttur til leiks í skákina gegn Stephen Mannion í sjöttu umferð aðalmótsins kl. 16:30 fimmtudaginn 29. október. Eigi að síður, ég var í baráttuham eftir atskákmótið og ákvað að fara með löndum með hvítu og tefldi einhverja útgáfu af Reti-byrjun. Taflmennska hvíts var ekki til fyrirmyndar en margir menn héldust inn á borðinu. Hægt og sígandi eyddi Skotinn reyndi miklum tíma og staða mín batnaði eftir því sem lengur hann hugsaði og lék fleiri leikjum.
5 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 29. október 2026, Helgi Áss Grétarsson (2405) gegn Stephen Mannion (2191), staðan eftir 27…Da7-b7.
Eftir síðasta leik átti Skotinn 83 sekúndur eftir á klukkunni en ég tæpar 19 mínútur. Í stað þess að sökkva mér of mikið í stöðuna vildi ég halda tímapressu á andstæðingnum, eitthvað sem ég sjaldan gerði sem ungur skákmaður, þá var það jafnan sannleikurinn á borðinu sem skipti öllu máli!
Fram að þessu í skákinni hafði ég forðast það að opna skálínuna b1-h7 fyrir svartreita biskup svarts með framrásinni e4-e5. Hins vegar höfðu aðstæður hér breyst, rými hvíts er mun meira en svarts. Ég sá einnig hugmyndina hér að fórna skiptamun á d6. Af þessum ástæðum var rétt að tefla afgerandi og leika 28. e5 og fylgja því svo eftir með að planta hróki á d6. Hins vegar fannst mér kænna að bíða aðeins, til að gera það aðeins erfiðara fyrir svartan í tímaþröng að leika góðum leik:
28. Bf2?! Hac8? 29. Hd2 Rb8 30. Hd6 Be7 31. e5! Bxd6 32. cxd6 Hf8 33. Bb6 Kh8 34. Bxa5 Ra6 35. Bxc6 og svartur gafst upp.
6 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 29. október 2026, Helgi Áss Grétarsson (2405) gegn Stephen Mannion (2191), lokastaðan eftir 35. Bg2-xc6.
Rétt eins og gegn spænska FIDE-meistaranum á atskákmótinu þá réð biskupapar mitt úrslitum í þessari skák.
Ég hafði því núna sex vinninga af sex mögulegum og var vinningi fyrir ofan næsta skákmann en áðurnefndur 14 ára FIDE-meistari Miroslav Baturin-Vinogradov (2216), sem teflir undir fána FIDE, en er frá Rússlandi, hafði fimm vinninga. Hann hafði í sjöttu umferð óvænt lagt 16 ára stórmeistarann að velli, Felix-Antonio Ilinca (2507). Á eftir honum kom m.a. indverski stórmeistarinn Babu Lalit (2489) með 4½ vinning.
Tragedían í lokaumferðunum þrem
Fyrir sjöundu umferð hefði ég, eftir á að hyggja, getað verið klókur og tekið yfirsetu. Þá hefði ég fengið hálfan vinning og leitt mótið einn fyrir síðustu tvær skákirnar með 6½ vinning af 7 mögulegum. Þannig hefði fengist mikilvæg hvíld eftir erfiðan dag þar sem tekið var þátt í atskákmóti og tefld nokkuð löng skák gegn Skotanum reynda.
Hins vegar datt mér þetta ekki einu sinni í hug. Ég hafði sex vinninga af sex mögulegum og í sjöundu umferð myndi ég augljóslega geta haldið áfram að vinna. Þess fyrir utan var öll ferðin til Benidorm hugsuð sem æfingaferð, stærri keppnir eru innan sjóndeildarhringsins.
Sem sagt, í sjöundu umferð mætti ég Rússanum unga og á heildina litið var taflmennska mín gegn honum slök, þótt ég hefði fengið mín færi til að ná í úrslit:
7 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 30. október 2026, Miroslav Baturin-Vinogradov (2216) gegn Helga Áss Grétarssyni (2405) staðan eftir 20. Bd3-e4.
Svartur er tveimur peðum yfir en er langt á eftir í liðsskipan. Helsti gallinn fyrir mig var hins vegar sá að hvítur átti 29 mínútur eftir en ég innan við tíu mínútur. Eigi að síður, augljóst hefði mátt vera að 20…Df6-e7 væri eini vitiborni leikurinn með það að markmiði að koma riddaranum á g8 út á f6 ásamt því að halda riddaranum á d7 til að halda peðunum á c5 og e5 eins lengi á lífi og kostur væri. Af einhverjum ástæðum sá ég drauga eftir 20…Df6-e7 en að sjálfsögðu væri 21. Bxb7 svarað með 21…Rb6! og svartur vinnur mann.
Sem sagt, ég lék hinum hörmulega 20…Rf8?? og eftir það varð skákinni ekki bjargað, ég gafst upp eftir 34. leik hvíts. Sá rússneski tefldi einfaldlega betur en ég í þessari skák.
Ég og ungi Rússinn vorum núna jafnir og efstir á mótinu með 6 vinninga af 7 mögulegum. Babu Lalit kom þar á eftir með 5½ vinning ásamt 18 ára Spánverja sem hafði gert sér lítið fyrir og lagt norska stórmeistarann Kristian Stuvik Holm að velli í sjöundu umferð. Þau úrslit gerðu að verkum að sá norski dró sig út úr mótinu og tefldi ekki í tveimur síðustu umferðunum.
Í áttundu umferð hafði ég hvítt gegn áðurnefndum 18 ára Spánverja, Malko Bartel Bruniaux (2185). Upp kom enskur leikur þar sem andstæðingur minn var betur að sér en ég. Á heildina litið var ég nokkuð farsæll að ná jafntefli þótt ég reyndi að vinna skákina með tvö hróka gegn hrók og riddara andstæðingsins, en hann hafði tvö peð upp í skiptamuninn. Að endingu var staðan ekki nægjanlega flókin til að ég gæti tekið of miklar áhættur og jafntefli varð niðurstaðan.

Á öðru borði í áttundu umferð vann indverski stórmeistarinn og reynsluboltinn Babu Lalit (2489) hinn 14 ára Rússa, Miroslav Baturin-Vinogradov (2216). Við stórmeistararnir deildum því efsta sætinu með jafn marga vinninga, 6½ vinning hvor, fyrir lokaumferðina, en Lalit var í efsta sæti með hærri stig en ég. Það munaði samt ekki miklu á milli okkar, sem dæmi var það mér í hag að Babu hafði teflt við norska stórmeistarann Holm sem var hættur í mótinu.

Ég stýrði hvítu mönnunum gegn Indverjanum og auðvitað var það til þess fallið að styrkja sjálfstraust mitt fyrir skákina, þar eð ég hafði síðan frá miðjum september teflt 16 kappskákir með hvítu þar sem meðalstig andstæðinga var yfir 2300 stig og ég ekki tapað skák en fengið samtals 13 vinninga.
8 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 31. október 2026, Helgi Áss Grétarsson (2405) gegn Babu Lalit (2489) staðan eftir 17…Dd8-b6
Þegar hér er komið við sögu hafði ég gert mér grein fyrir að jafntefli dygði fyrir mig að vinna mótið þar eð úrslit skáka í lokaumferðinni voru að þróast í þá veru að andstæðingar mínir í mótinu voru að hala inn vinningum en andstæðingar Babu síður. Ég stillti því huga minn á að berjast fyrir jafnteflinu og þegar þessi staða kom upp hélt ég fyrst að hvítur gæti leikið 18. Rxb3 og staðan væri í lagi eftir 18…Dxb3 19. Dxb3 Hxb3 20. Hh3. Hins vegar fannst mér vandasamt að leika fyrir hvítan ef svartur svaraði 18. Rxb3 með 18…Bxb3. Ég leitaði því annarra lausna og reiknaði út leiðina til jafnteflis: 19. Rc4! Dxd4 20. Dxd4 Rxd4 21. e3 Rc2+ 22. Kd2 d5 23. Bd3! og staðan er jöfn.
Í stað 21..Rc2+ reyndi svartur annað, 21…d5 22. exd4 dxc4 og nú fyrst byrjaði hörmungartaflmennska mín í þessari úrslitaskák:
9 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 31. október 2026, Helgi Áss Grétarsson (2405) gegn Babu Lalit (2489) staðan eftir 22…dxc4
Í þessari stöðu átti ég tæpar tíu mínútur eftir en andstæðingurinn um 20 mínútur. Upphaflega planið mitt var að leika 23. Bxc4 og svara 23…Bc2 með 24. Hc1. Þessu hefði ég átt að leika strax en fór að hafa áhyggjur af stöðunni eftir 24…Hxb2 25. Kd2 Hc8 26. Kc3 Ha2. Í þeirri stöðu hins vegar á hvítur einfalda leið til að halda jöfnu: 27. Ha1!
Þann leik sá ég ekki og mér fannst hróksendataflið eftir 26. Hxc2 (í stað 26. Kc3) 26…Hxc2 27. Kxc2 Hxc4+ vera óþægilegt á hvítt. Því þóttist ég vera voða sniðugur og lék hér 23. Kd2? en lenti í miklum vandræðum eftir hinn sjálfsagða leik 23…c3+!
Í framhaldinu léku báðir keppendur af sér á víxl og ég missti af mörgum tækifærum til að halda jöfnu en satt best að segja féllust mér hendur eftir að hafa leikið 23. Kd2 og bjó ekki yfir nægilegum miklum styrk til að jafna mig á þeim afleik. Ég tapaði því skákinni.
Hinn geðþekki Babu Lalit varð því sigurvegari mótsins og ég lenti í fjórða sæti. Spánverjinn 18 ára vann sína skák á öðru borði gegn 16 ára rúmenska stórmeistaranum þar eð sá síðarnefndi mætti ekki til leiks, mjög sérkennileg hegðun þar eð Rúmeninn átti raunhæfa möguleika á að vinna mótið með sigri, að því gefnu að við Babu gerðum jafntefli.. Með þessu missti Spánverjinn jafnframt möguleika á að ná áfanga að alþjóðlegum meistarartitli. Rússneski táningurinn vann stigaháan úkraínskan FIDE-meistara í lokaumferð mótsins og tryggði sér silfrið á mótinu.

Lokaorð
Fyrstu dagana eftir skákhátíðina í Benidorm var ég þunglyndur yfir því að hafa klúðra sigrinum á mótinu. Þess vegna meðal annars hef ég skrifað langa grein í tveimur hlutum um þetta skákferðalag mitt. Það hefur hjálpað mér að jafna mig. Niðurstaðan er einföld:
Ég þarf að tefla betur í byrjun tafls;
Ég þarf að tefla betur í miðtafli;
Ég þarf að tefla endatöfl betur.
Þá er bara að gera það!
Eftir allt saman, skák er enn skemmtileg!















