Vishy Anand (2773) og Ian Nepomniachtchi (2763) eru efstir og jafnir á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík sem hófst í fyrradag. Þeir hafa 1½ vinning eftir 2 umferðir. Þeir félagarnir unnu Hollendingana Jorden Van Foreest (2612) og Anish Giri (2783) í fyrstu umferð en öðrum skákum lauk með jafntefli.
Hollendingarnar snéru hins vegar til baka í 2. umferð með sigrum á Vladimir Kramnik (3888) og Jan Krzysztof Duda (2738) en öðrum skákum lauk með jafntefli.
Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2838) hefur gert jafntefli í báðum sínum skákum.
Þriðja umferð hefst núna kl. 12:30. Þá teflir Carlsen við Santosh Vidit (2695).
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (kl. 12:30)
- Auglýsing -
















