Magnús Carlsen (2835) virðist vera í toppformi á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík. Í gær vann Anand (2773) eftir langt og strangt endatafl. Heimsmeistarinn er nú efstur með 7 vinninga eftir 10 umferðir.
Anish Giri (2783) er nú kominn í annað sæti eftir góðan sigur á Vladimir Fedoseev (2724). Jordeen Van Foreest (2612) hjálpaði til fyrir Carlsen og Giri því hann lagði Nepo (2763) að velli í snarpri fórnarskák.
Frídagur er í dag en taflmennskan heldur áfram á morgun.
Staðan

Nánar á Chess.com
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (oftast kl. 12:30)
- Auglýsing -
















