Magnús Carlsen (2835) rak heldur betur að sér slyðruorðið á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík sem lauk í gær. Heimsmeistarinn hlaut 9 vinninga í 13 skákum og vann sannfærandi sigur á mótinu.
Carlsen hefur nú teflt yfir 40 kappskákir í röð án taps. Hann gerði jafntefli við Anish Giri (2783) í lokaumferðinni. Hollendingurinn er í fínu formi og er nú kominn upp í fjórða sæti á lifandi heimslistanum í skák með 2797 skákstig.
Nepo (2763), Ding Liren (2813) og Vishy Anand (2773) urðu í 3.-5. sæti. Rússinn fékk bronsið eftir stigaútreikning.
Lokastaðan
Nánar á Chess.com
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (oftast kl. 12:30)
- Auglýsing -
















