
Stórmeistarinn, Jóhann Hjartarson (2530), gerði sitt annað jafntefli í röð í dag á móti hinni pólsku Karinu Sczepkowska (2426). Í gær gerði hann líka jafntelfi en þá móti hinum sænska Erik Hedman (2378).
Jóhann hefur 4 vinninga eftir sjö umferðir. Á morgun teflir hann við ungverska alþjóðlega meistarann Adam Kozak (2425).
Rússneski stórmeistarinn Vladislav Artemiev (2709) er efstur með 6 vinninga.
252 skákmenn tefla í efsta flokki mótsins. Þar af eru 95 stórmeistarar!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14).
- Auglýsing -















