Stórmeistarinn, Jóhann Hjartarson (2530), vann ungverska alþjóðlega meistarann Adam Kozak (2425) í áttundu umferð Gíbraltar-mótsins í gær. Jóhann hefur hlotið 5 vinninga.
Í níundu og næstsíðustu umferð, sem fram fer í dag, teflir Jóhann við Ivan Cheparinov (2691), sem teflir undir flaggi Georgíu.
Tékkinn, David Navara (2738) er efstur ásamt Rússunum Vladislav Artemiev (2709) og Kirill Alekseenko (2637). Þeir hafa hlotið 6,5 vinninga.
252 skákmenn tefla í efsta flokki mótsins. Þar af eru 95 stórmeistarar!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14).
- Auglýsing -














