GAMMA Reykjavíkurskákmótið hefst 8. apríl nk. Teflt verður í Hörpu nú í áttunda sinn. Nú eru þegar 160 keppendur skráðir til leiks og þar af ríflega 20 stórmeistarar.
Mótið verður tileinkað minningu Stefáns Kristjánssonar sem lést í fyrra aðeins 35 ára.

Margir athyglisverðir keppenda eru skráðir til leiks. Stigahæstur þeirra er David Navara (2738). Tveir fyrrum sigurvegarar Erwin L´ami (2643) og Abjijeet Gupta (2581) eru skráðir

Ungliðadeildin verður sterk. Tveir sterkir Íranar Parham Maghsoodloo (2679), heimsmeistari 20 ára og yngri, og Alireza Firouzja (2618), sem sló í gegn á HM í at- og hraðskák eru skráðir til leiks.
Meðal kvennakeppenda má nefna vinkonu okkar Tönju Sadchev.

Yngsti stórmeistari heims, og sá næst yngsti í sögunni, aðeins 17 dögum eldri en Karjakin, Dommaraju Gukesh (2497) tekur þátt!
Sérstakur gestur á mótinu verður Arkady Dvorkovich, forseti FIDE. Án efa mun möguleikann á að halda heimsmeistaraeinvígið í Hörpu árið 2022 bera á góma!

Í dag er síðasti dagur fyrir Íslendinga til að fá 2.000 kr. afslátt á þátttökugjöldum. Skráning fer fram hér. Upplýsingar um þátttökugjöld verða í kjölfarið send í tölvupósti.
Nánar um mótið á heimasíðu þess.















