Lokaátökin á Norðurlandamótinu í skólaskák hófust kl. 10 í morgun. Jón Kristinn Þorgeirsson (a-flokki) og Stephan Briem (b-flokki) eru báðir í 1.-2. sæti í sínum flokkum. Íslendingar eru í 2. sæti í landskeppninni 1½ vinningi á eftir Norðmönnum.

Það gekk ekkert sérstakalega vel í fjórðu umferð hjá íslenku keppendum og komu aðeins 4½ vinningur í hús. Vignir Vatnar Stefánsson (b-flokki) og Tómas Möller (e-flokki) unnu sínar skákir. Fimm jafntefli og þrjár tapskákir.

Í a-flokki (u20) er Jón Kristinn í 1.-2. sæti með 3½ vinning. Hilmir Freyr Heimisson hefur 2 vinninga.
Í b-flokki (u17) hefur Stephan Briem 3 vinninga og er í 1.-2. sæti. Vignir Vatnar hefur 2½ vinning og er í 3.-6. sæti.
Í c-flokki (u15) hefur Óskar Víkingur Davíðsson 2½ vinning og er í 2.-5. sæti. Róbert Luu hefur 2 vinninga.
Í d-flokki hafa (u13) hafa Benedikt Briem og Gunnar Erik Guðmundsson 1½ vinning.
Í e-flokki (u11) hefur Tómas Möller 2½ vinning og Kristján Ingi Smárason hefur 1½ vinning.
Úrslit 4. umferðar

Heildarárangurinn íslensku keppendanna

Teflt er við frábærar aðstæður á Hótel Borgarnesi. Tilvalinn bíltúr fyrir skákáhugamenn.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (10 og 16)
















