
Tvö íslensk lið taka þátt á HM öldungasveita sem nú er í gangi á grísku eyjunni í Ródos. Báðar hafa þær byrjað vel. Íslenska liðið í flokki 50+ hefur fullt hús eftir tvær umferðir. Sveitinni barst liðsauki í dag þegar Jóhann Hjartarson mætti til leiks! Teflir væntanlega á morgun. Þá mætir liðið sterku liði Ítala.
Liðið í flokki 65+ hefur hlotið 5½ vinning af 8 mögulegum. Það vannst 3-1 sigur í fyrstu umferð en sveitin tapaði með minnsta muni fyrir sterkasta liðinu í 2. umferð.
Úrslitin hjá 50+

Úrslitin hjá 65+

- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar á Chess24 (hefjast kl. 12)
- Auglýsing -














