Upphitunarmót Team Iceland

    0
    742
    Hvenær:
    6. júlí, 2019 @ 14:00 – 15:00
    2019-07-06T14:00:00+00:00
    2019-07-06T15:00:00+00:00
    Hvar:
    Chess.com
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Tómas Veigar Sigurðarson
    6621455

    UPPHITUNARMÓT TEAM ICELAND KL. 14:00

    Eins og áður sagði hefst dagurinn á léttri upphitunarkeppni hjá Team Iceland. Lið er nú í óðaönn að undirbúa sig fyrir komandi keppnistímabil. Nýliðar eru að ljúka vináttukeppnum sem þarf að klára áður en þeir geta skráð sig til leiks í mótinu og liðin sem voru fyrir í keppninni að hita upp fyrir komandi átök.

    Lið Úkraínu og Íslands ákváðu að slá tvær flugur í einu höggi og setja þessar viðureignir saman í viðburð, sem svo verður í beinni útsendingu á Twitch rás Reykjavík Puffins, öllum til skemmtunar!

    Heimsmótið hefst svo formlega mánudaginn 8. júlí og er áætlað að fyrsta viðureign Team Iceland fari fram sunnudaginn 14. júlí. Liðið teflir í 1. deild Heimsmótsins sem verður sterkari á komandi keppnistímabili, en lið Frakklands og Kasakstan eru mætt í deildina í stað veikari liða sem féllu á síðasta tímabili.

    DAGSKRÁIN Á LAUGARDAGINN

    kl. 14:00 Team Iceland gegn Zimbabwe. Zimbabwe er nýtt lið í Heimsmótinu og ekki er gert ráð fyrir miklum fjölda liðsmanna af þeirra hálfu. Tímamörk verða 3 mínútur + 2 sekúndur á skák. Tefldar eru tvær skákir, ein með hvítt og ein með svart gegn sama andstæðingi. Tengill á viðureignina – https://www.chess.com/live#tm=3497 -.

    Á sama tíma mætir lið Úkraínu liði Filippseyja. Nýliðarnir frá Filippseyjum eru með grjóthart lið sem ætlar sér stóra hluti á komandi keppnistímabili í Heimsmótinu.

    kl. 14:30 Team Iceland gegn grjóthörðu liði Filippseyja. Tímamörk verða 5 mínútur + tvær sekúndur á skákina. Tengill á viðureignina – https://www.chess.com/live#tm=3513-.

    Á sama tíma mætir lið Úkraínu liði Zimbabwe.

    HVERNIG GET ÉG TEKIÐ ÞÁTT

    Það er einfalt að taka þátt í viðureignum Team Iceland og eru allir velkomnir í liðið!

    1. Fara á síðu liðsins á Chess.com og smella á join.
    2. Fara í Live chess og smella á “tournaments” flipann.
    HEIMASÍÐA LIÐSINS

    Team Iceland er með síðu á Facebook – https://www.facebook.com/chessteamiceland – Þar sem ávallt er hægt að finna upplýsingar um næstu viðburði.

    - Auglýsing -