Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson náði sér engan veginn á strik á alþjóðlega mótinu í Leiden í Hollandi sem lauk í gær.
Eftir jafntefli í fimm fyrstu umferðunum og eftir að hafa gefist upp með unnið tafl í sjöttu umferð á afmælisdaginn sinn hrökk allt í baklás hjá Íslandsmeistaranum þrettánfalda. Aðeins hálfur vinningur kom í hús í síðustu fjórum umferðunum og niðurstaðan varð 3 vinningar og 24 skákstiga tap.
Hannes tefldi 10 manna lokuðum flokki. Meðalstigin voru 2495 skákstig. Hannes var þriðji stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- SwissMaster (áþekkt Chess-Results)
- Beinar útsendingar
- Auglýsing -
















