Áttunda og næstsíðasta umferð alþjóðlega Riga-mótsins fór fram í gær. Helgi Áss Grétarsson (2412) og Stefan Steingrímur Bergsson (2190) gerðu jafntefli en Guðmundur Kjartansson (2453) og Gauti Páll Jónsson (2057) töpuðu.
Gúmmi og Helgi Áss hafa 4½ vinning, Stefán hefur 4 vinninga og Gauti Páll hefur 2½ vinning.
Lokaumferðin hófst núna í morgun. Mótið er semi-túrbómót. Tefldar eru 9 umferðir á 7 dögum.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 8, 12 og 14)
Olomouch Chess Summer 2019
Lenka Ptácníková (2089) tekur þátt í alþjóðulegu móti níu umferða móti í Olomouch í Tékklandi dagana 10.-17. ágúst.
Fyrsta umferð fór fram í gær og hóf Lenka mótið með sigri. Tvær umferðir fara fram í dag.
Split Open
Dagana 3.-11. ágúst fer fram alþjóðlega mótið Split Open í Króatíu. Helgi Pétur Gunnarsson (1740), Páll Þórsson (1725) og Iðunn Helgadóttir (1117) taka þátt.
Iðunn vann í gær. og hefur 2½ vinning. Helgi Pétur og Páll töpuðu og hafa 3 vinninga.
Lokaumferðin hófst núna í morgun.
















