Fjórða umferð Heimsmótsins í netskák fer fram Sunnudaginn 18. ágúst og hefst kl. 21:00. Lið Íslands mætir þá gríðarlega fjölmennu liði Argentínumanna, en þeir hafa stækkað gríðarlega frá síðasta tímabili. Þeir tefldu t.a.m. á 97 borðum gegn Úkraínu í 3. umferð.
Þessi viðureign og næsta (25. ágúst) gegn Rússum eru mikilvægustu viðureignir tímabilsins en við þurfum að vinna amk aðra til að vera öruggir í úrslit. Lið Íslands er umtalsvert sterkara en lið Argentínu og er því afar mikilvægt að allir sem geta mæti til leiks.
SKRÁNING
Skráning er ekki skilyrði fyrir þátttöku, en æskilegt væri ef keppendur færu hér – https://www.facebook.com/events/446374962759215/ – og merktu við “mæti”. Það auðveldar skipuleggjendum að tryggja að við séum með eins sterkt og fjölmennt lið og mögulegt er.
DAGSKRÁIN Á SUNNUDAGINN
- 21:00 Leifturskák – https://www.chess.com/live#tm=3992
- 21:20 Hraðskák – https://www.chess.com/live#tm=3993
- 22:00 Slembiskák – https://www.chess.com/live#tm=3995
BEINAR ÚTSENDINGAR

Chess.com leggur áherslu á að allar viðureignir mótsins verði sendar út í beinni útsendingu. FM Ingvar Þór Jóhannesson mun sjónvarpa viðureignum liðsins á Twitch rásinni twitch.tv/zibbit64 í samstarfi við Chess.com. Fögnum við því mjög, enda fer þar maður með gríðarlega reynslu af slíkum útsendingum. Gott væri að allir færu á slóðina að ofan og smelltu á “follow”.
NÝLIÐAR VELKOMNIR!
Nýliðar eru sérstaklega velkomnir og það eina sem þeir þurfa að gera er að fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!
https://www.chess.com/club/team-iceland
VERÐLAUN
Chess.com leggur til verðlaun í formi demants áskrifta ( efstu þrjú lið í 1. deild). Þeir sem taka oftast þátt eiga því ágæta möguleika á að vinna til verðlauna.
TENGLAR
- Facebook síða Team Iceland
- Allar viðureignir Team Iceland
- Pörun, staða og úrslit
- Síða LCWL hjá Chess.com – Þar verða fréttir og upplýsingar um keppnina
- Beinar útsendingar – FM Ingvar Þór Jóhannesson verður með beinar útsendingar frá viðureignum Íslands!










