Íslandsmótið í netskák hófst þann 10. nóvember.

Önnur umferð fór fram s.l. sunnudag og var frekar fámennt, enda mikið um að vera þá helgi. Það var alþjóðlegi meistarinn Arnar Gunnarsson sem bar sigur úr býtum, en hann endaði með 5.5 vinninga af 6 mögulegum.

Úrslit mótasyrpunnar eru að öðru leyti hér: https://www.chess.com/club/live-tournaments/team-iceland

Alls verða tefld 8 mót  í syrpunni og munu 5 bestu mótin gilda til stiga (samanlagðir vinningar). Lokamótið, sem fram fer þann 29. desember, gildir tvöfalt, þannig að það er tilvalið að taka þann dag frá strax!

Notast er við tímamörkin 4+2 og eru tefldar 9 umferðir í hverju móti.

Það er Skákfélagið Huginn sem stendur fyrir mótinu.

Næsta umferð

Næsta umferð fer fram sunnudaginn 24. nóvember og hefst kl. 20:00.

Tengill á þriðju umferð: https://www.chess.com/live#t=1122850

Staðan í mótasyrpunni

Staðan í mótasyrpunni er þannig að Davíð Kjartansson og Róbert Lagerman eru efstir með 10 vinninga.

Ath að það vantar nokkur nöfn á listann, þeir sem kannast við þessi notendanöfn geta sent mér skilaboð (https://www.facebook.com/lakituba). Óþekkt notendanöfn munu ekki gilda til verðlauna.

Hvernig tek ég þátt?

Það eina sem keppendur þurfa að gera er að vera í Team Iceland. Flestir eru þar nú þegar og kunna vonandi á þetta. Nýliðar fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!

https://www.chess.com/club/team-iceland

VERÐLAUN Í MÓTASERÍUNNI ERU ÞANNIG:

  1. sæti 15.000 kr.
  2. sæti 9.000 kr
  3. sæti 6.000 kr

AUKAVERÐLAUN Í FIMM FLOKKUM:

Aukaverðlaun verða í formi Demants áskriftaraðgangs á Chess.com

Demantsaðgangur veitir fullan aðgang að allri þjónustu vefsins. Sem dæmi má nefna byrjanagagnagrunn, skákþrautir, ýmiskonar skákkennsla, myndbönd og fleira.

Undir 2100 skákstigum (miðað við FIDE stig þann 1. nóvember):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Undir 1800 skákstigum (miðað við FIDE stig þann 1. nóvember):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Unglingaverðlaun (15 ára og yngri):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Kvennaverðlaun:

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

Eldri skákmenn (60 ára og eldri):

  • 1. Fimm mánaða Demants aðgangur
  • 2. Þriggja mánaða Demants aðgangur

ÍSLANDSMEISTARAR Í NETSKÁK

  • 2019 – ???
  • 2018 – Féll niður
  • 2017 – Féll niður
  • 2016 – Jón Kristinn Þorgeirsson
  • 2015 – Davíð Kjartansson
  • 2014 – Davíð Kjartansson
  • 2013 – Bragi Þorfinnsson
  • 2012 – Davíð Kjartansson
  • 2011 – Davíð Kjartansson
  • 2010 – Davíð Kjartansson
  • 2009 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2008 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2007 – Stefán Kristjánsson
  • 2006 – Snorri G. Bergsson
  • 2005 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Stefán Kristjánsson
  • 2003 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2002 – Arnar E. Gunnarsson
  • 2001 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2000 – Stefán Kristjánsson
  • 1999 – Davíð Kjartansson
  • 1998 – Róbert Lagerman
  • 1997 – Benedikt Jónasson
  • 1996 – Þráinn Vigfússon
- Auglýsing -