Aðalfundur SÍ 2026

    0
    309
    Hvenær:
    30. maí, 2026 @ 10:00 – 16:00
    2026-05-30T10:00:00+00:00
    2026-05-30T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Taflfélag Reykjavíkur
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Aðalfundur SÍ 2026 @ Taflfélag Reykjavíkur | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    ————

    Stjórn Skáksambands Íslands boðar hér með til aðalfundar Skáksambandsins í samræmi við 5. gr. laga SÍ.

    Fundurinn verður haldinn laugardaginn 30. maí  kl. 10:00 í félagsheimili TR, Faxafeni 12.

    Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. 8. gr. laga SÍ.

    Vakin er athygli á eftirfarandi atriðum:

    • Tillögur að breytingum á lögum og skáklögum ber að senda stjórn SÍ í síðasta lagi 10. maí sbr. 16. gr. laga SÍ. Þær verða birtar á vefsíðu SÍ í síðasta lagi 16. maí ásamt ársreikningi, sbr. 7. gr. laganna. 
    • Um atkvæðisrétt á fundinum gilda svohljóðandi ákvæði 6. gr. laga SÍ:  ,,Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi fer hvert félag með eitt atkvæði enda geti það sýnt fram á a.m.k. 10 félagsmenn með lögheimili á Íslandi og virka skákstarfsemi. Eitt atkvæði bætist við hjá félagi fyrir hverja sveit sem það sendir á Íslandsmót skákfélaga það árið. Standi aðildarfélag í gjaldfallinni skuld við sambandið hefur það ekki rétt til að eiga fulltrúa með atkvæðisrétt á aðalfundi. Við atkvæðagreiðslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, að hvert félag fari ekki með fleiri atkvæði en það hafði á aðalfundi árið áður. Hver kjörinn aðalfundarfulltrúi fer aðeins með eitt atkvæði. Ekki er heimilt að greiða atkvæði samkvæmt umboði eða bréfleiðis. Við atkvæðagreiðslur á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema um þau mál sem sérstaklega eru tilgreind í þessum lögum.“
    • Framboð: Ekki er kostið um forseta SÍ að þessu sinni. Tilkynning til framboðs stjórnar SÍ skal berast formanni kjörbréfanefndar (helgigretarsson@gmail.com) í síðasta lagi 27. maí. Hafi færri en tíu framboð borist innan tilskilins frest má tilkynna um framboð á aðalfundinum sjálfum.

    Lög SÍ má finna hér: https://skak.is/skaksamband/um-ssi/log-skaksambands-islands/

    Stjórn Skáksambands Íslands

    - Auglýsing -