Þriðja umferð Heimsmótsins í netskák fer fram sunnudaginn 28. júlí og hefst kl. 15 en þá mætum við nýliðunum frá Kasakstan. Viðureignin hefst talsvert fyrr en venjulega, en ástæðan er umtalsverður tímamunur á milli landanna.

Kasakstan er með talsvert lakara lið en Ísland og er því mjög mikilvægt að klára þessa viðureign nokkuð örugglega og bæta stöðu liðsins eftir erfitt tap gegn Úkraínu í síðustu viku. Þeir hafa verið að tefla á c.a. 25-30 borðum.
Kasakstan hefur byrjað illa í mótinu og hefur tapað öllum viðureignum sínum til þessa. Þeir töpuðu mjög örugglega gegn Serbíu um síðustu helgi og gegn Frakklandi í 1. umferð.
Dagskráin á sunnudaginn
- 15:00 Leifturskák – https://www.chess.com/live#tm=3712
- 15:20 Hraðskák – https://www.chess.com/live#tm=3713
- 16:00 Slembiskák – https://www.chess.com/live#tm=3714
SKRÁNING
Skráning er ekki skilyrði, en gott væri ef keppendur færu hér – https://www.facebook.com/events/2311860822463200/ – og merktu við “mæti”. Það auðveldar skipuleggjendum að tryggja að við höfum amk lágmarkslið í viðureigninni.
Beinar útsendingar

Chess.com leggur áherslu á að allar viðureignir mótsins verði sendar út í beinni útsendingu. FM Ingvar Þór Jóhannesson mun sjónvarpa viðureignum liðsins á Twitch rásinni twitch.tv/zibbit64 í samstarfi við Chess.com. Fögnum við því mjög, enda fer þar maður með gríðarlega reynslu af slíkum útsendingum. Gott væri að allir færu á slóðina að ofan og smelltu á “follow”.
NÝLIÐAR VELKOMNIR!
Nýliðar eru sérstaklega velkomnir og það eina sem þeir þurfa að gera er að fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!
https://www.chess.com/club/team-iceland
VERÐLAUN
Chess.com leggur til verðlaun í formi demants áskrifta ( efstu þrjú lið í 1. deild). Þeir sem taka oftast þátt eiga því ágæta möguleika á að vinna til verðlauna.
TENGLAR
- Facebook síða Team Iceland
- Allar viðureignir Team Iceland
- Pörun, staða og úrslit
- Síða LCWL hjá Chess.com – Þar verða fréttir og upplýsingar um keppnina
- Beinar útsendingar – FM Ingvar Þór Jóhannesson verður með beinar útsendingar frá viðureignum Íslands!










