Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland

Íslandsmót öldunga (65+) verður haldið í fyrsta skipti sem kappskákmót 5.-22. september nk. Mótið verður haldið í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Tefldar verða sex umferðir á mótinu. Reynt er að koma til móts við þarfir landsbyggðarmanna með fyrirkomulagi mótsins. Tvær hálf vinnings yfirsetur í umferðum 1-4 eru leyfðar.
Fyrstu þrjár umferðirnar eru haldnar með viku millibili á fimmtudögum (5.-19. september). Mótinu lýkur svo með helgarlotu (20.-22. september).
Dagskrá
1. umferð Fimmtudagurinn 5. september 16:00
2. umferð Fimmtudagurinn 12. september 16:00
3. umferð Fimmtudagurinn 19. september 16:00
4. umferð Föstudagurinn 20. september 16:00
5. umferð Laugardagurinn 21. september 13:00
6. umferð Sunnudagurinn 22. september 13:00
Möguleiki er að Norðanmenn geti teflt 1. og jafnvel einnig 2. umferð fyrir norðan við hvorn annan þ.e. ef þátttaka þeirra verður nægjanleg góð.Umhugsunartími: 90 mínútur auk 30 sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik.
Mótið er opið fyrir alla 65 ára og eldri. Fæddir 1954 eða fyrr.
Þátttökugjald: 10.000 kr. á keppenda
Verðlaun:
- 120.000 kr. ferðastyrkur á alþjóðlegt öldungamót
- 50.000 kr.
- 30.000 kr.
Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfinu.
Veit verða sérverðlaun (verðlaunagripir) fyrir hver fimm ár (70+, 75+ o.s. frv.).
Oddastig
Stuðst er við ráðleggingar FIDE.
- Buchols Cut 1
- Buchols
- Sonnoborn-Berger
- Innbyrðis úrslit
- Flestar vinningsskákir
- Flestar vinningsskákir með svörtur
Skráning