Íslandsmót Símans í netskák

    0
    650
    Ingvar Þór og Björn Ívar verða ekki með lýsingar í dag!
    Hvenær:
    6. september, 2026 @ 15:00 – 18:00
    2026-09-06T15:00:00+00:00
    2026-09-06T18:00:00+00:00
    Hvar:
    Síminn Sport
    Tengiliður:
    Íslandsmót Símans í netskák @ Síminn Sport

    Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2026 hefst sunnudaginn 6. september og stendur yfir til 15. nóvember. Mótið, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans, fer fram á netinu í útsláttarfyrirkomulagi, þar sem 16 sterkir skákmenn etja kappi um titilinn Íslandsmeistari í netskák.

    Taflmennska hefst kl. 15:00 á sunnudögum. Tefldar verða tvær viðureignir á hverju sinni

    Viðureignir í 16 manna úrslitum

    Dregið hefur verið um viðureignir í 16 manna úrslitum, sem fram fara á fjórum sunnudögum í september og október.

    Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, eru sem hér segir:

    • 6. september: WGM Lenka Ptácníková – GM Jóhann Hjartarson 0-4
    • 6. september: IM Hilmir Freyr Heimisson – FM Símon Þórhallsson 4-0
    • 13. september: FM Jón Kristinn Þorgeirsson – FM Róbert Lagerman 3½-½
    • 13. september: GM Bragi Þorfinnsson – FM Oliver Aron Jóhannesson 3½-2½
    • 27. september: IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – FM Bárður Örn Birkisson 3½-1½
    • 27. september: IM Björn Þorfinnsson – GM Helgi Áss Grétarsson ½-3½
    • 4. október: GM Vignir Vatnar Stefánsson – IM Dagur Ragnarsson 3½-½
    • 4. október: FM Sigurbjörn Björnsson – FM Ingvar Þór Jóhannesson 2-4

    Átta manna úrslit

    Sigurvegarar tveggja viðureigna í sama flokki mætast í átta manna úrslitum:

    • GM Jóhann Hjartarson – FM Sigurbjörn Björnsson
    • IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – GM Helgi Áss Grétarsson
    • FM Jón Kristinn Þorgeirsson – GM Vignir Vatnar Stefánsson
    • GM Bragi Þorfinnsson – IM Hilmir Freyr Heimisson

    Undanúrslit og úrslit

    • Lenka/Jóhann – Sigurbjörn/Ingvar – Aleksandr/Bárður – Björn/Helgi Áss
    • Jón Kristinn/Róbert – Vignir/Dagur  – Bragi/Oliver – Hilmir/Símon
    • 15. nóvember: Úrslit!

    Dagskrá

    Mótið fer fram á sunnudögum kl. 15 frá 6. september til 15. nóvember 2026, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:

    • 6. september 2026: Netskák – 16 manna úrslit
    • 13. september 2026: Netskák – 16 manna úrslit
    • 27. september 2026: Netskák – 16 manna úrslit
    • 4. október 2026: Netskák – 16 manna úrslit
    • 25. október 2026: Netskák – átta manna úrslit
    • 1. nóvember 2026: Netskák – átta manna úrslit
    • 8. nóvember 2026: Netskák – undanúrslit
    • 15. nóvember 2026: Netskák – úrslit

    Taflmennska hefst kl. 15:00. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Hægt er einnig að fylgjast með á YouTube- og Twitch-rásum RÍSÍ.

    Verðlaun
    Verðlaunafé mótsins er sem hér segir:

    • 1. sæti: 125.000 kr.
    • 2. sæti: 75.000 kr.
    • 3. sæti: 25.000 kr.
    • 4. sæti: 25.000 kr.
    - Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn