LCWL úrslit: Ísland – Serbía

    0
    1464
    Hvenær:
    20. október, 2019 @ 17:30 – 19:30
    2019-10-20T17:30:00+00:00
    2019-10-20T19:30:00+00:00
    Hvar:
    chess.com
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Tómas Veigar Sigurðarson
    6621455

    Lokaumferð Heimsmótsins fer fram næsta sunnudag kl. 17:30. Við mætum þéttu liði Serba, sem við höfum alltaf unnið, í úrslitaviðureign um 3ja sætið í deildinni.

    Staðan eftir 9. umferð

    Í úrslitum gildir sú regla að tvö stig fást fyrir hverja viðureign (leiftur- ,hrað og slembiskák), og er því alls hægt að vinna 6 stig í hverri umferð.

    SKRÁNING

    Skráning er ekki skilyrði fyrir þátttöku, en æskilegt væri ef keppendur færu hér – https://www.facebook.com/events/949498105407947/ – og merktu við “mæti”. Það auðveldar skipuleggjendum að tryggja að við séum með eins sterkt og fjölmennt lið og mögulegt er.

    DAGSKRÁIN

    BEINAR ÚTSENDINGAR

    Twitch.tv/zibbit64

    Chess.com leggur áherslu á að allar viðureignir mótsins verði sendar út í beinni útsendingu. FM Ingvar Þór Jóhannesson mun sjónvarpa viðureignum liðsins á Twitch rásinni twitch.tv/zibbit64 í samstarfi við Chess.com. Fögnum við því mjög, enda fer þar maður með gríðarlega reynslu af slíkum útsendingum. Gott væri að allir færu á slóðina að ofan og smelltu á “follow”.

    NÝLIÐAR VELKOMNIR!

    Nýliðar eru sérstaklega velkomnir og það eina sem þeir þurfa að gera er að fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!

    https://www.chess.com/club/team-iceland

    VERÐLAUN

    Chess.com leggur til verðlaun í formi demants áskrifta ( efstu þrjú lið í 1. deild). Þeir sem taka oftast þátt eiga því ágæta möguleika á að vinna til verðlauna.

    TENGLAR

    - Auglýsing -