Næst síðasta viðureign tímabilsins fer fram sunnudaginn 13. október kl. 17:30, en þá mætum við meisturnunum frá Úkraínu.
Þá þarf ekki að kynna til leiks, en þeir eru með gríðarlega fjölmennt og öflugt lið. Það er því ljóst að við þurfum á öllum okkar liðsmönnum að halda í þessari viðureign!

Staðan í 1. deild er þannig að Úkraína er lang efst með 27 stig (eiga eftir að tefla við Rússa), Rússar eru í öðru sæti með 24 stig og Ísland er í þriðja sæti með 15 stig.
Í úrslitum gildir sú regla að tvö stig fást fyrir hverja viðureign (leiftur- ,hrað og slembiskák), og er því alls hægt að vinna 6 stig í hverri umferð.
Næstu viðureignir
- Sunnudaginn 13. október Ísland – Úkraína
- Sunnudaginn 20. október Ísland – Serbía (áætlun, á eftir að semja við þá)
SKRÁNING
Skráning er ekki skilyrði fyrir þátttöku, en æskilegt væri ef keppendur færu hér – https://www.facebook.com/events/1900642350081485/ – og merktu við “mæti”. Það auðveldar skipuleggjendum að tryggja að við séum með eins sterkt og fjölmennt lið og mögulegt er.
DAGSKRÁIN
- 17:30 Leifturskák – https://www.chess.com/live#tm=4756
- 17:50 Hraðskák – https://www.chess.com/live#tm=4755
- 18:30 Slembiskák – https://www.chess.com/live#tm=4754
BEINAR ÚTSENDINGAR

Chess.com leggur áherslu á að allar viðureignir mótsins verði sendar út í beinni útsendingu. FM Ingvar Þór Jóhannesson mun sjónvarpa viðureignum liðsins á Twitch rásinni twitch.tv/zibbit64 í samstarfi við Chess.com. Fögnum við því mjög, enda fer þar maður með gríðarlega reynslu af slíkum útsendingum. Gott væri að allir færu á slóðina að ofan og smelltu á “follow”.
NÝLIÐAR VELKOMNIR!
Nýliðar eru sérstaklega velkomnir og það eina sem þeir þurfa að gera er að fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!
https://www.chess.com/club/team-iceland
VERÐLAUN
Chess.com leggur til verðlaun í formi demants áskrifta ( efstu þrjú lið í 1. deild). Þeir sem taka oftast þátt eiga því ágæta möguleika á að vinna til verðlauna.
TENGLAR
- Facebook síða Team Iceland
- Allar viðureignir Team Iceland
- Pörun, staða og úrslit
- Síða LCWL hjá Chess.com – Þar verða fréttir og upplýsingar um keppnina
- Beinar útsendingar – FM Ingvar Þór Jóhannesson verður með beinar útsendingar frá viðureignum Íslands!












