Reglur um val keppenda á barna- og unglingaskákmót erlendis

Uppfærðar á stórnarfundi SÍ, 7. febrúar 2023. Afreksmörk uppfærð 13. maí 2025.

Reglugerð um þátttöku barna og unglinga á alþjóðlegum barna- og unglingaskákmótum FIDE og ECU.

1. Þau börn og unglingar sem uppfylla lágmarks stig SÍ (sjá töflu) eru valin sem fulltrúar Íslands á alþjóðleg barna- og unglingamót FIDE og ECU, svo framarlega sem þau mót séu sett á dagskrá af SÍ, og svo framarlega sem fulltrúar Íslands standist frekari kröfur eins og kveðið er á um í þessari reglugerð eins og fjölda tefldra skáka og þátttöku á NM í skólaskák. Stjórn SÍ skal leitast eftir því að setja mót á dagskrá og velja keppendur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en þremur mánuðum fyrir mót.

2. Skilgreiningar

a) Heimsafreksmörk: Ef líklegt er að keppandi lendi í efsta fjórðungi móts.
b) Afreksmörk: Ef líklegt er að keppandi lendi í efri helmingi móts.
c) Lágmörk: Ef líklegt er að keppandi verði ofar en í neðsta fjórðungi mótsins.

3. Kostnaðarhlutfall er sem hér segir

a) Efri afreksmörk – SÍ greiðir allan kostnað
b) Afreksmörk – SÍ greiðir helming kostnaðar
c) Lágmörk – Keppandi ber allan kostnað sjálfur

SÍ greiðir kostnað við einn fararstjóra að lágmarki á þau mót sem það hefur á dagskrá.

4. Efni SÍ til sérstakrar fjáröflunar vegna þátttöku á þessum mótum er keppendum skylt að taka þátt í þeirri fjáröflun.

5. Eftirfarandi tafla segir til um þann styrkleika sem SÍ setur sem lágmark og einnig tilgreinir hún afreksmörkin. Miðað er við sömu aldursflokka og keppt er á HM/EM ungmenna (slétt ár).

Strákar Nýtt Stelpur Nýtt
U18 Heims 2350 U18 Heims 2100
Afreks 2200 Afreks 1950
Lágmark 2000 Lágmark 1850
U16 Heims 2250 U16 Heims 2000
Afreks 2100 Afreks 1850
Lágmark 1950 Lágmark 1750
U14 Heims 2100 U14 Heims 1900
Afreks 1950 Afreks 1800
Lágmark 1800 Lágmark 1650
U12 Heims 2000 U12 Heims 1750
Afreks 1850 Afreks 1650
Lágmark 1700 Lágmark 1550
U10 Heims 1800 U10 Heims 1650
Afreks 1700 Afreks 1550
Lágmark 1550 Lágmark 1450
U8 Heims 1650 U8 Heims 1500
Afreks 1550 Afreks 1450
Lágmark 1450 Lágmark 1400

Miðað er við alþjóðleg skákstig. Aldur miðast við afmæli á viðkomandi ári. Afreks- og lágmörk eru unnin úr mótstöflum EM & HM barna og unglinga og skulu yfirfarin árlega.

Ekki er miðað við skákstig á ákveðnum punkti heldur er nægjanlegt að hafa náð viðkomandi skákstigum sex mánuðum áður en val keppenda fer fram.

6. Lágmarks virkni til að geta keppt sem fulltrúi Íslands í alþjóðlegri keppni barna og unglinga skal vera; að hafa teflt 25 kappskákir reiknaðar til alþjóðlegra skákstiga á síðustu 12 mánuðum. Þó skal tekið tillit til aðstæðna ungra skákmanna af landsbyggðinni.

7. Stjórn SÍ skipar ár hvert ráðgjafarnefnd sem fylgist sérstaklega með því hvort tilefni sé til að veita undanþágu frá stigalágmörkum og virknireglum .

8. Þátttaka í opnum flokki í NM í skólaskák er skilyrði fyrir vali á önnur mót á vegum SÍ. Ráðgjafarnefnd metur hvort forföll keppenda sem voru valdir á NM séu réttmæt.

Viðauki I

Við gerð taflna í þessari reglugerð var stuðst við HM og EM ungmenna árið 2019, 2022 og 2023.

Tekið var meðaltal mótanna miðað upphaflega töfluröð keppenda. Fundið var út hvaða stig þeir keppendur sem eru í neðstir í efsta fjórðungi mótsins, sá keppandi er í miðju töfluröð og sá sem er neðstur í þriðja fjórðungi mótins. Meðaltal EM og HM er námundað í næstu 50 stig.

Dæmi: 100 manna flokkur – stuðst er við stig þeirra sem eru nr. 25 (heimsafreksmörk), 50 (afreksmörk) og 75 (lágmörk) í töfluröð keppenda.

Oddatöluár eru meðaltal sléttatöluáranna og námundað í næsta 50.

Töflur eru uppfærðar ár hvert.

Viðauki II

Vinnuskjal sem sýnir útreikninga afreksmarkanna.

Viðauki III

ELDRI REGLUR (EKKI LENGUR Í GILDI)

Reglugerð um þátttöku barna og unglinga á alþjóðleg barna- og unglingaskákmótum FIDE og Evrópuskáksambandsins.

  1. Þau börn og unglingar sem uppfylla lágmarks stig SÍ (sjá töflu) eru valin sem fulltrúar Íslands á alþjóðleg barna- og unglingamót FIDE og Evrópuskáksambandsins, svo framalega sem þau mót séu sett á dagskrá af SÍ, og svo framarlega sem fulltrúar Íslands standist frekari kröfur eins og kveðið er á um í þessari reglugerð eins og virkni og þátttöku á NM í skólaskák.
  2. Ef barn eða unglingur ermeð þann styrkleika sem talinn er þurfa til að lenda í miðjum hópi eða ofar á HM/EM barna og unglinga  (sjá töflu),  þá skilgreinir SÍ þann einstakling sem afreksbarn eða afreksungling.
  3. Afreksunglingum og afreksbörnum er boðið á þau mót sem SÍ setur á dagskrá og er meirihluti ferðakostnaðar greiddur. Miðað er við að afrekskrakkar taki þátt í ferðakostnaði sem nemi þriðjungi. Aðrir fulltrúar Íslands greiða sinn ferðakostnað sjálfir, en er bent á styrki úr almenna styrktarkerfi SÍ og einnig getur þeim staðið til boða kjör eins og ókeypis uppihald frá mótshöldurum.
  4. Efnir SÍ til sérstakar fjáröflunar vegna þátttöku á þessum mótum er keppendum skylt að taka þátt í þeirri fjáröflun.
  5. Eftirfarandi tafla segir til um þann styrkleika sem SÍ setur sem lágmark og einnig tilgreinir hún afreksmörkin.Miðað er við alþjóðleg skákstig Aldur miðast við afmæli á viðkomandi ári. T.d. teljast þeir 11 ára sem fæddir eru árið 2000, fyrir mót á árinu 2011. Afreksmörkin eru unnin úr mótstöflum EM&HM barna undafarin ár

Uppfærð tafla fyrir 2025

Strákar Nýtt Stelpur Nýtt
U18 Heims 2350 U18 Heims 2100
Afreks 2200 Afreks 1950
Lágmark 2000 Lágmark 1850
U16 Heims 2250 U16 Heims 2000
Afreks 2100 Afreks 1850
Lágmark 1950 Lágmark 1750
U14 Heims 2100 U14 Heims 1900
Afreks 1950 Afreks 1800
Lágmark 1800 Lágmark 1650
U12 Heims 2000 U12 Heims 1750
Afreks 1850 Afreks 1650
Lágmark 1700 Lágmark 1550
U10 Heims 1800 U10 Heims 1650
Afreks 1700 Afreks 1550
Lágmark 1550 Lágmark 1450
U8 Heims 1650 U8 Heims 1500
Afreks 1550 Afreks 1450
Lágmark 1450 Lágmark 1400
  1. Vegna ónákvæmni fyrstu stiga skal lágmarksfjöldi skáka vera 25 til þess að þau séu marktæk.
  2. Fyrir börn yngri en 11 ára metur ráðgjafarnefnd skipuð af stjórn SÍ hver þeirra eiga erindi á alþjóðleg barnamót, einnig metur sama nefnd hver þeirra teljast til afreksbarna. Ráðgjafanefnd skilar áliti hvað þetta varðar til SÍ.
  3. Ráðgjafarnefndin skal skipuð skólastjóra Skákskólans og tveim öðrum aðilum sem taldir eru þekkja vel til ungra skákmanna og geta metið getu og framtíðarhorfur þeirra.Stjórn SÍ skipar nefndina og tekur allar lokaákvarðanir.
  4. Lágmarks virkni til að geta keppt sem fulltrúi Íslands í alþjóðlegri keppni barna og unglinga skal vera; að hafa teflt 25 kappskákir reiknaðar til íslenskra stiga á síðustu 12 mánuðum.Þó skal tekið tillit til aðstæðna ungra skákmanna af landsbyggðinni og barna yngri en 11 ára.
  5. Við upphaf hvers starfstímabils stjórnar SÍ (1.júní)  skal stjórnin í samráði við Skákskóla Íslands ákveða í hvaða barna- og unglingamótum Ísland taki þátt frá 1.júlí fram til 30.júní næsta ár. Um leið eru þeir einstaklingar sem uppfylla stigalágmörkin og afreksmörkin útnefndir og gildir útnefningin til áramóta.   Að lokinni birtingu stigalista 1. desember er á sama hátt útnefnt og gildir sú útnefning frá 1.janúar til 30.júní.  Stjórn SÍ er heimilt að veita undanþágu frá stigalágmörkum og virknireglum við sérstakar aðstæður. Einnig getur stjórnin að undangenginni ráðleggingu ráðgjafarnefndarinnar hækkað einstakling upp í afrekshópinn.
  6. Þátttaka í opnum flokki í NM í skólaskák er skilyrði fyrir vali á önnur mót á vegum SÍ.  Stjórn SÍ og Skákskólinn meta hvort forföll keppenda sem voru valdir á NM séu réttmæt.
  7. Miðað er við að SÍ greiði kostnað við fararstjóra ef fleiri en tveir keppendur fara á mót.