Nona og Áskell við upphaf skákar. Mynd; Heimasíða mótsins.

Frammistaða Áskels Arnar Kárasonar á Evrópumóti öldunga 65 ára og eldri sem lauk í Drammen í Noregi um síðustu helgi er sú besta sem íslenskur skákmaður hefur náð á þessum vettvangi. Áskell var einn fjögurra sigurvegara mótsins, hlaut 6 ½ vinning af níu mögulegum ásamt Rússanum Vorotnikov, Svíanum Renman og Þjóðverjanum Ackermann en mótsstigin réðu því að andstæðingur Áskels í lokaumferðinni, Vorotnikov, fékk sæmdarheitið Evrópumeistari öldunga 65 ára og eldri. Áskell Örn varð annar á stigum og var sæmdur titlinum alþjólegur skákmeistari fyrir frammistöðuna. Hann er vel að nafnbótinni kominn en meðfram taflmennsku hefur hann sinnt félagsmálum skákhreyfingarinnar áratugum saman og var um skeið forseti Skáksambands Íslands.

Jóhannes Björn Lúðvíksson vann sína síðustu skák í lokaumferðinni og náði einnig afbragðs árangri með 5 ½ vinning og varð í 13. – 16. sæti. Hann vann í síðustu umferð og hversu ánægjulegt sem það var fyrir hann persónulega, þá voru örlaganornirnar samt að spinna sinn myrka vef, því að punkturinn sá tryggði Vorotnikov mikilvægt stig. Eins og fjallað var um um í síðasta pistli þá tefldi Jóhannes Björn við Vorotnikov í 1. umferð.

Áskell tefldi af miklu öryggi á mótinu, tefldi rösklega og fékk oft betra út úr byrjuninni. Á Hauganesi í grennd við Dalvík, þar sem Baccalá-mótið var haldið í tengslum við Fiskidaginn mikla, fylgdust menn grannt með viðureign hans við Nonu Gaprindhasvili, heimsmeistara kvenna frá 1962 til 1978. Mikil spenna og hart barist. Margoft virtist Áskell ætla að sigra en Nona náði einhvern veginn alltaf að bægja hættunni frá. Eftir ítrekaðar tilraunir varð Áskell að sætta sig við jafntefli:

EM öldunga 2018; 7. umferð:

Nona Gaprindhasvili – Áskell Örn Kárason

Kóngsindversk vörn

1. d4 d6 2. c4 e5 3. Rc3 exd4 4. Dxd4 Rc6 5. Dd2 Rf6 6. b3 Be6 7. e4 a5 8. f3 g6 9. Bb2 Bg7 10. Rge2 a4!

Hrifsar til sín frumkvæðið en svartur getur opnað a-línuna á hentugu augnabiki.

11. Hd1?! axb3 12. axb3 O-O 13. g3?

Hvítur á þegar við mikla liðsskipunarörðugleika að etja og ekki bætir þessi leikur úr skák.

13. … Rd7 14. Rb5 Rce5

15. Bxe5

Nona hefur örugglega ekki leikið þessu létt í lund – að gefa svartreitabiskupinn er nánast dauðasynd í svona stöðum. En ekkert betra bauðst.

15. … dxe5 16. Rc1 c6 17. Rc3 Db6 18. Ra4 Da7 19. Df2 Da5+ 20. Dd2 Dxd2+ 21. Kxd2

21. … Hfd8

Tangarsókn kemur úr báðum áttum! 21. … f5! hefði rústað vörnum Nonu.

22. Kc3 Bf8 23. Be2 Rc5 24. Hxd8 Hxd8 25. Rd3 Rxa4 26. bxa4 Ha8 27. Hb1 Hxa4 28. Hxb7 Hxc4+ 29. Kd2 f6 30. Bd1 Hd4 31. Kc3 c5 32. Bc2 c4 33. Rf4!

Nona er ekki af baki dottin. Nú er orðið erfitt að vinna stöðuna.

33. …Bf7 34. Rd5 Bxd5 35. exd5 Bh6 36. Hd7 Bd2+ 37. Kb2 Bb4 38. h4 Be1

Bæði hér og leik fyrr átti svartur að leika f6-f5.

39. h5 gxh5 40. Bxh7 Kf8 41. Bg6 c3 42. Kb3

42. … Hb4+

Smá glenna í lokin, Nona má ekki taka hrókinn vegna 43. … c2+ og síðan 44. … c1(D). )

43. Ka3 Hc4 44. Kb3 Hb4+ 45. Ka3 Hb6 46. d6 c2 47. Bxc2 Bb4 48. Ka4 Hxd6 49. Hxd6 Bxd6 50. Bg6 Kg7

– Jafntefli.

Áskell ætlar ekki að láta staðar numið við þetta og mun tefla á HM öldunga sem fram fer í Bled í Slóveníu í árslok.

Skákþættir Helga Ólafssonar í Morgunblaðinu birtast viku síðar á Skák.is. Þessi skákþáttur birtist 18. ágúst 2018.

Skákþættir Morgunblaðsins.

- Auglýsing -