Opnunarhátíðin var glæsileg! Mynd Ingvar Þór.

Ólympíuskákmótið hefst kl. 11 í dag. Í fyrstu umferð teflir liðið í opnum flokki við lið Palestínu.  Andstæðingarnir þar hafa á milli 1900-2000 skákstig nema varamaðurinn sem er alþjóðlegur meistari með 2233 skákstig! Athyglisverð uppstilling. Sennilega á varamaðurinn að ná inn vinningum á neðsta borði en hann teflir þó ekki gegn Íslendingum í dag. Jóhann hvílir hjá körlunum þannig að uppstillingin er svona:

Kvennaliðið mætir liðið Bahamas. Þar er skákkonan á fyrsta borði með 1452 en aðrar eru stigalausar. Lenka Ptácníková hvíla í dag. Gaman að segja frá því að Nansý þreytir sína frumraun á Ólympíumóti í dag.

Í gærkvöldi fór fram opnunarhátíð mótsins. Sá besta sem undirritaður hefur séð hingað til. Kostnaður við hana er samkvæmt heimildum mínum hærri en heildarkostnaðurinn við EM landsliða á Íslandi!

https://platform.twitter.com/widgets.js

https://platform.twitter.com/widgets.js

Nokkuð óskipulag hefur verið á mótinu hingað til en slíkt reyndar fylgir oft upphafi slíkra móta. Skipulagningu á rútuferðum hefur verið í ólestri auk þess sem einhverjir hafa lent í því að gisting þeirra hefur verið afturkölluð. Færeyingar lentu í því að hótelið þeirra var afturkallað en þeir áttu að vera á Euphoria eins og íslenska liðið.

Athyglisverð kvörtun kom frá forseta rússneska skáksambandins í gær.

Andrey Filatov er ekki ánægður með Boom Boom Beach night club

Kvörtuna verður hins vegar að setja í samhengi við það að framundan eru forsetakosnignar þar sem Rússinn Dvorkevich keppir við Makropoulos, starfandi forseta FIDE, um forsetaembættið.

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 1.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

- Auglýsing -