Annarri umferð Ólympíumótsins í skák lauk fyrr í dag í Batumi í Georgíu.

Eins og fram kom í pistli gærdagsins voru hnökrar á skipulagi mótsins í 1. umferð en töluvert betra skipulag var á hlutunum í dag. Eftirlitið við innganginn gekk hraðar og var þess vegna hægt að byrja umferðina mun fyrr heldur en í gær.

Andstæðingar Íslendinga í opna flokknum í dag voru Lettar. Þeir búa yfir þéttu liði og voru nr. 31 í stigaröðinni.

Guðmundur var fyrstur til þess að klára á 4. borði en hann lokkaði andstæðing sinn, stórmeistarann Toms Kantans (2509) í lúmska gildru.

Guðmundur slátraði í raun andstæðingi sínum í dag!

Hvíta staðan er nú þegar töluvert verri en hér lék Kantans hræðilegum leik 15. Kb1?? sem Guðmundur svaraði með 15..c5! og biskupinn á a7 er grafinn lifandi. 16. Bxc5 strandar á 16..Bxc5! og hrókurinn á d1 er óvaldaður í framhaldinu. Kantans lék í staðinn 16. Bb5 og fékk í framhaldinu hrók fyrir báða biskupana sína en það var ekki nóg og Guðmundur vann sannfærandi sigur með snarpri kóngssókn. Góð byrjun á viðureigninni!

Hannes Hlífar var næstur til þess að klára á 3. borði í tíðindalítilli skák gegn Meshkovs (2535). Hannes var með örlítið betra tafl mest allan tímann en náði ekki að gera sér mat úr yfirburðunum og skákin fjaraði út í jafntefli eftir tímamörkin.

Á fyrsta borði mætti Héðinn Igor Kovalenko (2646). Héðinn fékk betra tafl eftir byrjunina og fórnaði snemma skiptamun fyrir tvö samstæð frípeð á kóngsvængnum. Flestum leist vel á stöðu Héðins en Kovalenko var fastur fyrir og varðist vel. Héðinn missti af bestu leiðunum í tímahrakinu og í framhaldinu tókst Kovalenko að snúa á hann og innbyrða sigurinn.

Síðastur til þess að klára var Jóhann á 2. borði. Hann tefldi tískuvörn gegn Neiksans (2566) og fékk trausta en nokkuð þrönga stöðu. Neiksans reyndi smá príl á kóngsvængnum en Jóhann leysti vel úr kröfum stöðunnar og tókst að stöðva allar hótanir Lettans. Í framhaldinu leystist taflið upp og flest benti til þess að skákin stefndi í jafntefli þegar Neiksans lék klaufalega af sér peði.

Hér lék Lettinn 35. c4? (betra var t.d. 35. Rf3). Jóhann svaraði með 35..Rh5 og það er ljóst að hvítur tapar peði. Einn úr íslenska hópnum átti leið hjá borðinu þegar þetta gerðist og sá þegar dapurlegur svipur færðist yfir andlit Meshkovs. Hann reyndi þó sitt besta og fórnaði öðru peði til viðbótar og treysti á eitthvað mótspil með frípeðið sitt á c-línunni. Jóhann tefldi mjög vandað í framhaldinu og má segja að reynslan hafi skipt miklu máli því á þessum tímapunkti var ljóst að úrslitin í viðureigninni réðust með þessari skák. Það var því pressa á Jóhanni en af sinni stöku rósemi tókst honum að skipta upp á hættulegu c-peði hvíts í staðinn fyrir h-peðið sitt og kom þá upp endatafl þar sem Jóhann hafði riddara og e- og g-peð gegn riddara hvíts. Meshkovs réð ekkert við svörtu peðin og Jóhann sigldi sigrinum í höfn.

Skákir karlanna eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

Kvennaflokkur:

Kvennaliðið mætti Hollandi sem voru nr. 16 í stigaröðinni og með mjög þétta sveit.

Lenka hafði hvítt gegn stórmeistaranum Zhaoqin Peng (2367) á 1. borði en Peng hefur lengi verið meðal bestu skákkvenna heims. Eftir byrjunina fórnaði Peng peði og fékk skjóta liðsskipan fyrir menn sína. Í framhaldinu fékk hún hættuleg sóknarfæri og Lenku fataðist flugið í vörninni og missti af leið (30. Ha2) sem hefði haldið skákinni í dýnamísku jafnvægi. Peng innbyrti sigurinn sannfærandi eftir það.

Á 2. borði hafði Guðlaug svart gegn ungstirninu og kvenstórmeistarnum Anne Haast (2345)  Upp kom Petroffs vörn og Gulla komst vel út úr byrjuninni. Í stöðu sem sennilega var örlítið betri á hvítt missti Haast alveg þráðinn og hleypti Gullu með hrók niður á 2. reitaröð. Þar hefði Haast þurft að sætta sig við það að staðan var bara orðin jöfn en fór þá í frekari ævintýri og kórónaði svo mistökin með 28. leik sínum.

Hér lék Haast 28. Hd3?? sem Guðlaug svaraði með 28..He1+ og hvítur gafst upp því eftir 29. Hxe1 Hxe1+ 30. Kh2 Rg4+ 31. Kh3 Rxf2+ 32. Kh2 Hh1# er hvítur mát. Frábær úrslit hjá Gullu gegn andstæðingi sem er tæplega 400 stigum hærri en hún!

Á 3. borði hafði Nansý hvítt gegn alþjóðlega meistaranum Tea Lanchava (2339). Upp kom Pirc vörn og Nansý valdi hvasst framhald með peðaframrásinni 7. e5. Betra hefði verið að undirbúa framrásina aðeins, t.d. með 7. h3. Í framhaldinu varð peðið veikt á e5 og svo fór að Lanchava tókst að vinna það. Nansý barðist vel í framhaldinu en reynslumikill andstæðingur hennar kom í veg fyrir allt mótspil og vann af öryggi.

Á 4. borði hafði Jóhanna Björg svart gegn kvenstórmeistaranum Iozefina Paulet (2275). Upp kom drekaafbrigði Sikileyjarvarnar og Paulet fékk þægilegri stöðu, með biskupaparið og í raun var það bara hvítur sem gat teflt til vinnings á meðan Jóhanna neyddist til þess að bíða. Jóhanna varðist af hörku en af mikilli kænsku komst Paulet út í endatafl sem reyndist unnið á hvítan. Afar vönduð taflmennska hjá Paulet.

Skákir úr kvennaflokki eru hér að neðan, hægt er að velja skák í flettiglugganum (…)

3. umferð

Á morgun mæta karlarnir Ísrael, sem skarta engum öðrum en sjálfum Boris Gelfand á 1. borði og eru nr. 10 í stigaröðinni.

Konurnar mæta alþjóðlegu liði líkamlega fatlaðra. Þær eru nr. 83 í stigaröðinni.

Áframhaldandi umfjöllun verður hér á Skak.is

Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Mótið á chess-results 2.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur

Myndir frá 1. umferð: Myndapakki 2. umferð

Hlaðvarp 2. umferð: Ólympíuhlaðvarpið

 

Frá Batumi,

Ingvar Þór Jóhannesson / Björn Ívar Karlsson

- Auglýsing -