Jólakapp og happ KR

Eins og jafnan á aðventunni verður mikið um dýrðir á mánudagskvöldið kemur þann 17. desember þegar JÓLASKÁKMÓT KR verður haldið með pomp og prakt að hefðbundnum sið.

Þess er að vænta að hart verði barist og varist í í KR-heimilinu í Frostaskjóli það kvöld enda glæsilegir vinningar og ýmis jólaglaðningur í boði fyrir efstu menn og útvalda keppendur á öllum aldri skv. slemmilukku.

Mótið sem jafnan hefur verið vel sótt, er öllum opið en samt ekki heiglum hent, hefst kl. 19.30. Tefldar  verða 13 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma á skákina.

Því má búast við hörkumóti sem rótgrónir KR-ingar eru vanir en gæti þó reynt verulega á þol og taugar annarra góðra gesta og keppenda. Búast má við allt að 40 þátttakendum með einbeittan sigurvilja að vopni sem væntanlega munu reyna að selja sig dýrt, enda að miklu að keppa eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.

Kaffi og konfekt, malt og appelsín verður í boði fyrir þorstláta meðan á móti stendur. Þátttökugjald er kr. 500 en kr. 300 fyrir fastagesti.

Skákmótin í Vesturbænum þar sem valinkunnir skákmenn í vígahug mæta til skemmta sér og skáka öðrum eru nú haldin tvisvar í viku allt árið um kring.  Þe. öll mánudagskvöld kl. 19.30 – 22.30 en svo einnig árdegis á laugardögum kl. 10.30-13.00 fyrir árrisula ástríðuskákmenn og verða stöðugt vinsælli.

Sjáumst og kljáumst í góðum jólaanda!

Myndir frá sama móti árið 2015.
- Auglýsing -