Skákbörn Laufásborgar.

Skákbörn Laufásborgar eru á leið á EM í Rúmeníu í lok mánaðarins og eru á fullu að safna fyrir ferðinni.

Af því tilefni blásum við til skákhátíðar á Eiðistorgi!

Veglegt listaverkauppboð mun fara fram kl.14:30 þar sem boðin verða upp verk eftir þekkt listafólk á borð við Jóní Jónsdóttur, Godd, Auði Ómarsdóttur, Rán Flygenring, Ragnheiði Maísól, Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur, Ragnheiði Þorgrímsdóttur, Sunnu Ben, Lóu Hjálmtýsdóttur, Steinunni Mörtu Önnudóttur, Unnar Örn Auðarson, Sunnevu Ásu Weisshappel, Þránd Þórarinsson, Sigurð Atla Sigurðsson, Vilhelm Anton Jónsson, Ingibjörgu Sigurjónsdóttur, Jónu Hlíf Halldórsdóttur, Hugleik Dagsson, Steinunni Gunnlaugsdóttur, Siggi Odds og Sögu Sig. Einnig verður hægt að fjárfesta í listaverkum eftir skákbörnin sjálf.

Einnig verður í boði að tefla við skákbörnin! Þorir þú að tefla við bestu leikskólabörn í heimi í skák?

Þá verður veglegur kökubasar og dásamlega lífræna múslíið okkar til sölu.

Hvort sem þú vilt fjárfesta í listaverki, grípa góða köku og/eða múslí eða tefla við litla snillinga þá er Eiðistorg staðurinn til að vera næsta laugardag!

Hlökkum til að sjá ykkur!
Skákbörn Laufásborgar

- Auglýsing -