Hið árlega sumarskákmót Fjölnis fer fram í hátíðarsal Rimaskóla laugardaginn 11. maí og hefst kl. 11:00. Mótinu lýkur með verðlaunahátíð og happadrætti kl. 13:15.
Keppt er um verðlaunagripi sem Rótarýklúbbur Grafarvogs gefur til mótsins og fjölda áhugaverðra vinninga; pítsur, bíómiða og 66°N húfur.
Mótið er ætlað öllum grunnskólabörnum og er þátttakan ókeypis.
Þátttakendum er bent á að mæta tímanlega til skráningar 10 – 15 mínútum fyrir mót.
Tefldar verða 6 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma.
í skákhléi býðst þátttakendum og foreldrum að kaupa veitingar á 250 kr, drykkur, prins póló og kex.
Skákmót Fjölnis eru skemmtileg og allar aðstæður á keppnisstað einstaklega góðar fyrir keppendur og foreldra.
Fjölmennum á síðasta skákmót skólaársins. Mætum í Rimaskóla 11. maí kl. 11:00.















