Það er ekki bara Ísland sem hefur skákdag en íslensk skákhreyfing heldur upp á skákdag Íslands, á afmælisdegi Friðriks Ólafssonar, 26. janúar ár hvert.
Fulltrúar skákhreyfingarinnar; Arkady Dvorkovich, Viswanathan Anand, Vladimir Kramnik, Levon Aronian og Hou Yifan mæta á fjarfund hjá FIDE á milli 14 og 16. Umræðuefnið er „Skák til komast betur af“. Nánar á heimasíðu FIDE.
FIDE var stofnað 20. júlí 1925 og fagnar því 96 ár afmæli í dag! Alþjóðlegi skákdagurinn hefur undanfarin ár verið haldinn þann dag. Áskorunin í ár er að nota daginn til að kenna einhverjum að tefla!
Tilvalið er að kenna ungdómnum skák en að sjálfsögðu er einnig hægt að kenna einhverjum eldri.
Mælt er með að setja svo myndir á vefinn og nota myllumerkið #Internationalchessday.
Skák er fyrir alla!
















