Það var mikið um dýrðir eins og sjá má af myndum þegar Sumarmótið við Selvatn á Nesjavallaleið fór fram við fjallavatnið safírblátt núna í vikunni.
Góð þátttaka var í mótinu eins og jafnan sem nú var haldið í 14. sinn. Þó einhverjir forfölluðust á síðustu stundu fylltu aðrir skörð enda mótið fullbókað fyrirfram. Alls tóku 40 keppendur á öllum aldri þátt, þar á meðal nokkrar landsliðskonur í skák sem krydduðu mótið með þátttöku sinni eins og sjá má á mótstöflunni hér að neðan.
Hinn ungi og sívaxandi skákmaður Vignir Vatnar Stefánsson fór með glæstan yfirburðasigur af hólmi og Hólmsheiði, hlaut 10.5 vinning af 11. mögulegum. Og svo var það engin önnur en hin öfluga landsliðskona Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, varaforseti Skáksambandsins, sem varð efst í baráttunni um annað sætið með 9.5 vinning. Þau tvö voru nánast í sérflokki, því þegar upp var staðið munaði tveim vinningum á þeim og næstu keppendum, þeim Róbert Lagerman, tvöföldum sigurvegara fyrri móta, 2015/2018 og Lenku Ptácnikovu. Gamla kempan, Bragi Halldórsson, einnig tvöfaldur sigurvegari fyrri móta, 2012/2013, varð fimmti með 7 v. og Ingólfur Hjaltalín, hinn stigalausi, sjötti en jafn honum að vinningum. Öldungaverðlaun hlaut Gunnar Kr. Gunnarsson (87), sigurvegari fyrsta mótsins 2007 og ungmennaverðlaunin Benedikt Þórisson, báðir með 6.5 v. Þórir Benediktsson, faðir hans var skákstjóri og fórst það vel úr hendi. Nánari úrslit má skoða á Chess-Results

Þetta var hvorki meira né minna en í þriðja sinn sem Vignir Vatnar vinnur mótið, fyrst árið 2014 þá aðeins 11 ára að aldri, síðan 2017 þá 14 ára og nú aftur þrem árum síðar, 17 ára. Í hin skiptin hefur hann jafnan verið með efstu mönnum.
Verðlaunagripir og peningar voru veitt fyrir 5 efstu sætin auk aukaverðlauna. Þess utan fengu efstu menn nýútkomna ljósmyndabók „Barflies Reykjavík“ eftir SnorriBros frá Kaffibarnum og ennfremur þeir og fleiri gjafakort, út að borða, frá veitingahúsunum Höfninni og Chido við Ægissíðu. Allir fóru sáttir í bæinn upp úr kl. 22, en missáttir þó aðallega við sjálfa sig.

Þetta var í 14. skipti, eins og áður sagði, sem slíkt sumar- og fjáröflunarmót er haldið á vegum Skákdeildar KR, nú alveg sérstaklega til styrktar barna – og unglingastarfi félagsins, sem til stendur að stórefla á næstunni, með ráðningu fastra leiðbeinanda og kennara. Skipulagða og reglubundna skákkennslu fyrir börn hefur tilfinnanlega vantað í Vesturbænum, sem nú á að ráð bót á.

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður KR og Þórhildur Garðarsdóttir úr aðalstjórn, mættu á svæðið og heiðruðu nokkra stjórnarmenn Skákdeildarinnar með Gullmerki KR fyrir langt og ötult starf í þágu hennar og móðurfélagsins um árabil.

Fjölmargir stuðningsaðilar styrktu mótið sem og keppendur með taflmennsku sinni. Vignir tefldi fyrir Grillhúsið, Jóhanna fyrir Egersund Ísland, Róbert fyrir Byggingarsamvinnufélag aldraðra, Lenka fyrir Reir verk, Bragi fyrir VS veitingar, GunniGunn, fyrir Fasteignasöluna Híbýli,og Benedikt. fyrir SD lögmannsstofu.

Mikið hátíðarkvöldverðarhlaðborð var framreitt að venju undir beru lofti af meistarakokkum SuperChefs í skákhléi og Sveinbjörn Jónsson, stóð fyrir hljóðfæraslætti og söng í mótsbyrjun, meðan keppendur sýndu af sér kæti.
Skákdeildin, með Kristján Stefánsson, hrl., formann í forystu, þakkar keppendum, stuðningsaðilum og ekki hvað síst heiðurshjónunum Guðfinni R. Kjartanssyni og Erlu Axelsdóttur húsráðendum í Listaselinu við Selvatn fyrir þátttöku sína, stuðning og fyrirgreiðslu við mótshaldið.

ESE















