- umferð áskorendaflokks
19:30 Elvar Már Sigurðsson virðist hafa leikið af sér mann á efsta borði á móti Oliver Bewersdorff. Oliver er í smá vandræði með að koma mönnunum út.
Borð 10: Sennilega eina skiptið sem þvær konur mætast í mótinu – Ulker Gasanova er með hvítt og hefur unnið peð á móti Iðunni Helgadóttur. En Iðunn hefur smá pressu í staðinn svo sennilega er staðan í jafnvægi. Nei – rangt Ulker finnur betra plan og hirðir tvö peð á kóngsvængnum.

Borð 9: Mjög tvísýn staða þar sem Adam Omarsson á hvít á Gunnar Erik Guðmundsson. Gunnar Erik hefur unnið mann og peð en Adam er með máthótun og opnar línur. Adam gæti jafnvel verið með betra – þetta verður spennandi.
Borð 12: Bjartur Þórisson og Óttar Örn Bergmann Sigfússon tefla hvasst. Báðir eru með hrók og drottning á sjöunda röð andstæðingsins. Bjartur er manni yfir. En það dugar skammt. Óttar Örn nær mátsókn á undan.

20:00 Elvar Már gefst upp á fyrsta borði – erfitt að tefla manni undir og á móti sterkum andstæðingi.
Borð 13: Tómas Möller hefur dustað rykið af taflmennsku sinni. Nú vinnur hann sannfærandi sigur á Guðmund Orra Sveinbjörnsson.
Borð-4: Pétur Palmi Harðarson brýst í gegnum kóngsstöðu Benedikts Þórissonar – óverjandi máthótun og Benedikt gefst upp.

Borð 3: Jóhann Ragnarsson er með svart á Aron Þór Mai. Jóhann hefur náð að stórskemma kóngsstöðu Arons og Aron berst fyrir lífi sínu.
Borð 2: Lenka P. er með virkara stöðu – en peði undir á móti Arnari Milutin Heiðarssýni.
20:20
Iðunn gefst upp á móti Ulker. Gunnar Erik lifir af og vinnur seiglusigur á Adam.
Borð 11: Mikael Bjarki Heiðarsson teflir aðra góða skák. Andstæðingurinn Hjálmar Sigvaldason verður að trúa á kraftaverk – annaðhvort mát eða þráskák ef hann á að bjarga skákinni. Mun varla gerast.
Borð 6: Haraldur Baldursson er með skiptamun yfir á móti Loga Sigurðssyni. Haraldur verður varla í vandræðum með úrvinnsluna.
Borð 7: Sigurjón Haraldsson og Óskar Maggason eru í harðri baráttu – get ekki metið stöðuna.
Borð 8: Ingvar Wu Skarphéðinsson og Ólafur Gísli Jónsson tefla mjög tvísýna skák – hér er ekki talin peð og léttir menn. Ólafur fórnar manni og nær mátsókn á miðju borði.
20:30
Borð 15: Einn af yngstu mönnum mótsins – Birkir Hallmundarson gefst upp. Arnar Logi Kjartansson var of sterkur í kvöld – en það leit lengi út fyrir að vera á hinn veginn.
Borð 14: Tveir af yngstu mönnum mótsins Jósef Omarsson og Arnar Freyr Orrason eru komnir langt inn í endataflið. Jósef á eitt auka peð og vinnur endataflið sannfærandi.
21:00
Borð-2: Lenka vinnur og
Borð-11: Mikael Bjarki vinnur.
Borð-3: Aron Þór er í vandræðum. Jóhann Hjörtur hirðir af honum eitt, tvö peð og kóngur Arons er á eilífum ferðalögum.

21:30 Bara fjögur borð eftir. Borð 3, 5, 6 og 7.
Borð-5: Kristján Örn Elíasson teflir við Alexander Oliver Mai. Skákin enn í jafnvægi – smá gloppur í peðastöðunni svo eitthvað getur gerst.
Borð-3: Sennilega er það Aron Þór sem verðskuldar titillinn „Houdini“ í kvöld. Hann nærð að snúa taflinu við og vinnur. Hver ætti að trúa því að það væri hægt? Jóhann yfirspilaði hann fyrr í kvöld.
Borð-6: Haraldur vinnur Loga – það hefur verið skýrt lengi.
22:15:
Borð-4: Alexander Oliver skiptir í tvo hróka fyrir drottningu og vinnur sannfærandi.
Borð-7: Sigurjón er með betra og vinnur Óskar.
Þá er fimm efstir og jafnir með 4 vinninga. Mótið er æsispennandi. Í næstu umferð mætist stigahæstu keppendurnir Oliver Bewerdorff og Lenka P.
Staða efstu manna


















