Haustmót Skákfélags Akureyrar lauk í gær. Úrslit sjöundu og síðustu umferðar:
Andri-Sigþór 1-0
Stefán-Smári 0-1
Gunnar Logi-Sigurður 0-1
Tobias-Emil 1-0
Markús-Brimir 1-0
Alexía-Jökull Máni 0-1
Það er því Andri Freyr Björgvinsson sem er meistari félagsins, annað árið í röð. Hann vann allar sínar skákir, sjö að tölu. Smári Ólafsson náði líka öðru sætinu með miklu öryggi; tapaði aðeins fyrir Andra en vann aðrar skákir. Í yngri flokki urðu þeir Markús Orri Óskarsson og Tobias Þórarinn Matharel jafnir og þurfa að tefla einvígi um meistaratitilinn.
Lokastaðan:
Andri Freyr Björgvinsson 7
Smári Ólafsson 6
Sigurður Eiríksson 5
Stefán G Jónsson 4
Markús Orri og Tobias 3,5
Sigþór Árni, Jökull Máni og Gunnar Logi 3
Emil Andri og Brimir 2
Alexía Hilmisdóttir 1
















