Mynd frá afhendingu bókargjafar frá Braga Halldórssyni

Í dag 16 júní 2021 fékk Vinaskákfélagið höfðinglega gjöf frá Braga Halldórssyni, en það voru 20 bækur sem hann skrifaði um “Heimsbikarmót á Stöð 2 í Reykjavík 1988.”

Þessar bækur verða notaðar í verðlaun á skákmótum á vegum Vinaskákfélagsins og einnig í heimsóknir félagsins til Búsetukjarna, athvörfum og geðdeildum sem gjöf ásamt skáksettum og skákklukkum.

Vinaskákfélagið þakka Braga Halldórssyni kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf.

Kveðja, Hörður Jónasson, varaforseti Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -