TePe Sigeman & Co skákmótið fer fram þessa dagana í Malmö í Svíþjóð. Flott skákmót með langa sögu. Átta áhugaverðir keppendur taka þátt og tefla allir við alla.
Hollenski stórmeistarinn Jorden Van Foreest hefur byrjað best allra og hefur 3 vinninga eftir 4 umferðir. Í öðru sæti á viskualdurinn sinni fulltrúa en þar má finna Nigel Short (2626) sem vann Jonas Buhl Bjerre (2550) í gær.
Nils Grandelius (2666), Gawain Jones (2684), Nihal Sarin (2652) og Etienne Bacrot (2658) eru í 3.-6. sæti með 2 vinninga.
Ivan Sokolov er með beinar útsendingar.
- Vefsíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
- Auglýsing -
















