Hjörvar að tafli á Kviku Reykjavíkurskákmótinu. Mynd: IÞJ

Kapphlaup Hjörvar Steins Grétarssonar (2597) og Vignis Vatnar Stefánssonar (2383) á Haustmóti TR heldur áfram. Báðir unnu þeir sínar skákir í sjöundu umferð. Hjörvar vann Lenku Ptácníková (2127) og Vignir lagði Jón Árna Halldórsson (2103) að velli. Hjörvar hefur fullt hús en Vignir hefur 6½ vinning. Dagur Ragnarsson (2376) sem hafði betur gegn Stephani Briem (2095) er þriðji með 4 vinninga.

Hlé verður tekið á Haustmóti TR vegna Íslandsmóts skákfélaga. Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram miðvikudaginn 6. október.

Opinn flokkur

Jóhann H. Ragnarsson (1912) er efstur 6½ vinning eftir hafa lagt Benedikt Þórisson (1636) að velli. Arnar Milutin Heiðarsson (1916) er annar með 5½ vinning. Heris Hadi Rezaei og Jóhann Jónsson (1778) eru í 3.-4. sæti með 5 vinninga.

Mótið á Chess-Results.

Heimasíða TR.

- Auglýsing -