Íslensku fulltrúarnir í Kragerö. Mynd: Anniken Vestby.

Alþjóðlega mótinu í Kragerö lauk í dag. Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) og FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson (2245) enduðu efstir íslensku keppendanna í titlaflokknum. Benedikt Þórisson (1790) varð efstur Íslendinga í stigaflokknum.

Titlaflokkurinn

Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2450) og FIDE-meistarinn Símon Þórhallsson (2245) hlutu 5 vinninga.

Gauti Páll Jónsson (2048) og Birkir Ísak Jóhannsson (2103) hlutu 4½ vinning.

Stórmeistari kvenna, Lenka Ptácníková (2173) og Andri Freyr Björgvinsson (2096) hlutu 4 vinninga.

Bræðurnir Stephan Briem (2039), Benedikt Briem (2079) hlutu 3½ vinning

Arnar Milutin Heiðarsson (2054) hlaut 2½ vinning

FIDE-meistari kvenna, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2032), hlaut 1 vinning.

Gauti Páll, Símon, Andri og Lenka hækka um 9-12 skákstig.

Stigaflokkurinn

Benedikt Þórisson (1790) hlaut 6½ vinning

Kristján Dagur Jónsson (1797) hlaut 6 vinninga

Adam Omarsson (1546) og Ingvar Wu Skarphéðinsson (1664) hlutu 5½ vinning

Árni Ólafsson (1397) og Iðunn Helgadóttir (1444) og Bjartur Þórsson (1168) hlutu 4 vinninga.

Jósef Omarsson (1185) hlaut 3½ vinning

Adam hækkar um 132 stig. Einnig hækka Árni (90), Bjartur (78), Jósef (72) og Iðunn (21) á stigum.

 

- Auglýsing -