Í gær barst yfirlýsing frá Skáksambandi Norðurlanda. Þar er lýst yfir stuðningi við úkraínskt skáksamfélag og því lýst yfir að samböndin sendi ekki skákmenn til Rússlands á meðan þessi stríði stendur.
FIDE hafði áður lýst yfir að ólympíuskákmótið yrði ekki haldið í Moskvu. Um helgina bárust svo fréttir af því að Indland hefði lýst yfir áhuga sínum að halda mótið.
Forseti FIDE er Rússinn Arkady Dvorkovich. Sá reyndar hefur notið mikils traust í skákheimum fyrir góð störf en staða hans er ekki öfundsverð núna.
FIDE gaf svo frekar afdráttarlausa yfirlýsingu í gær. Þar kemur meðal annars fram.
- Engir viðburðir verða haldnir í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi
- Öll styrtarsamningum við rússnesk og hvít-rússnesk fyrirtækjum er slitið.
- Skákmenn frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi geta ekki teflt undir eigin fáunum. Þeir geta hins vegar teflt á mótum FIDE undir hlutlausum fána.
- Skákmenn sem hafa stutt við þetta óréttanlegt stríð, geta átt von á því að mál þeirra fari fyrir siðanefnd FIDE. Sergey Karjakin er þar sérstaklega nefndur en framkoma hans í netheimum hefur vakið mikla athygli.
- FIDE-þingið verður haldið í sumar. Stefnt er á að halda ólympíuskákmótið ennig í sumar. FIDE gefur öðrum en Indverjum 10 daga frest til að lýsa yfir áhuga sínum.
Yfirlýsingin í heild sinni
Afar góða og ítarlega umfjöllun um málið má finna á Chess24.com.
Á morgun svo hefst FIDE Grand – mótið í Belgrað í Serbíu. Þar eru fimm rússneskir stórmeistarar skráðir til leiks. Í gær kom svo frétt þess efnis að Aeroflot-flugfélagið hefur hætt öll flugi sem gæti mögulega skapað vandræði fyrir rússneska skákmenn.
Úkraínski stórmeistarinn og landsliðsmaðurinn Oleksander Sulypa hafði boðað komu sína Íslandsmót skákfélaga til að tefla með TR. Hann mætir ekki enda í hans forgangi að verja land sitt og þjóð.
;















