Það verður sannkölluð (skóla)skákveisla helgina 11.-13. mars. Þá fara fram þrjú skólaskákmót í Rimaskóla. Íslandsmót barnaskólasveita (1.-3. bekkur) fer fram föstudaginn, 11. mars. Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkur) fer fram laugardaginn, 12. mars og Íslandsmót grunnskólasveita (8.-10. bekkur) fer fram sunnudaginn, 13. mars. Athygli er vakin á því að nemendur geta teflt á fleiri en einu móti.
Athugið að skráningfrestur hefur verið lengdur fram til miðnættis í kvöld.
Íslandsmót barnaskólasveita (1.-3. bekkur)
Mótið fer fram föstudaginn 11. mars í Rimaskóla og hefst kl. 16. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími 5+2 á hvern keppenda. Áætlað er að því ljúki með verðlaunaafhendingu um kl. 18:00.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit – en hver sveit er skipuð fjórum nemendum 1.-3. bekkjar (auk allt að fjögurra varamanna).
Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjár sveitirnar og einnig efstu b-e sveitir sem og þrjár efstu landsbyggðarsveitirnar. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði
Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (1.-3. bekkur) er Rimaskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.
Skráningu skal lokið í í síðasta lagi kl. 13, þann 9. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.
Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7 bekkur)

Mótið fer fram laugardaginn, 12. mars í Rimaskóla og hefst um kl. 13. Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Mótinu ætti að vera lokið um kl. 17.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4.–7. bekk en þó er nemendum úr í 1.–3. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a-og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.
Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.
Sigurvegari mótsins hlýtur rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fyrirhugað er að fari fram í Danmörku í október nk.
Núverandi Íslandsmeistari barnaskólasveita (4.-7. bekkur) er Vatnsendaskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.
Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 13, þann 9. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.
ÍSLANDSMÓT GRUNNSKÓLASVEITA (8.-10. bekkur) 2022

Mótið fer fram sunnudaginn 13. mars í Rimaskóla og hefst kl. 13. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Áætlað er að mótinu ljúki um kl. 17.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.-10. bekk en þó er nemendum úr í 1.–7. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.
Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.
Sigurvegari mótsins hlýtur rétt til þátttöku á Norðurlandamóti grunnskólasveita sem fyrirhugað er að fari fram í Danmörku í október nk.
Núverandi Íslandsmeistari grunnskólasveita er Landakotsskóli. Nánar um mótið í fyrra hér.
Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 13, þann 9. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.












